Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1988, Side 16

Heima er bezt - 02.10.1988, Side 16
JAKOB V. HAFSTEIN: LAXÁ í AÐALDAL Jakob V. Hafstein hefur samið bók um ána, þar sem hann nafngreinir og lýsir öllum stangaveiðistöðum árinnar og segir skemmti- legar veiðisögur. Bókin um Laxá í Aðaldal er sjálfkjörin eign allra stangveiðimanna, en þar er einnig að finna fróðleik og skemmtun fyrir alla þá, sem áhuga hafa á íslenskri náttúru. Bókin er prýdd fjölmörgum Ijósmyndum, teikningum og yfirlitskortum af ánni. Efnisút- dráttur er á norsku, ensku og þýsku. Bók 980 HEB-verð kr. 1.500,00 GÍSLI JÓNSSON: Saga Laxár- virkjunar Þetta er stór og falleg bók, 364 bls., prýdd fjölda mynda. Bókin skiptist í átta kafla. For- saga virkjunarinnar er rakin og saga þriggja áfanga Laxárvirkjunar. Einnig er ítarlega fjall- að um deilur þær sem blossuðu upp í samb- andi við virkjunina, en flestum landsmönnum er eflaust enn í fersku minni hin svokallaða Laxárdeila. „... Þessari bók er ekki ætlað að vera vísinda- rit. Ég hef leitast við að vinna alþýðlegt fræði- starf sem mér finnst að sé í ætt við blaða- mennsku...“ segir höfundur í formála. Saga Laxárvirkjunar er vel skrifuð, stórf- róðleg og skemmtileg aflestrar. Bók 976 HEB-verð kr. 2.875,00 Richardt Ryel Kveðja frá Akureyri Minningar og ljósmyndir frá Akureyri Richardt Ryel er fæddur á Akureyri árið 1915, fór ungur að fást við verslunarstörf á Akureyri en síðar í Reykjavík og Danmörku, þar sem hann er nú búsettur. Hér skráir hann minningar sínar frá Akureyri fram yfir seinni heims- styrjöld. Frásögn hans er glettin og hlý, og hann lýsir mönnum og atburðum á lifandi hátt. Bókin er prýdd fjölda mynda frá gömlu Akur- eyri, sem margar eru áður óbirtar og gefa þær bókinni verulegt gildi. Þessi bók mun ylja mörgum lesandanum um hjartaræturnar. Bók 468. HEB-verð kr. 1.500,00. 16 Bókaskrá

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.