Heima er bezt - 02.10.1988, Page 22
ÞÝDDAR SKÁLDSÖGUR
SIDNEY SHELDON:
í TVÍSÝNUM LEIK
(„Master of the game“)
Metsölubók í tveim bindum.
Enginn bandarískur rithöfundur hefur skrifað
fleiri metsölubækur en Sidney Sheldon. Marg-
ir kannast við myndböndin eftir þessari bók,
sem voru vinsælasta efnið á videóleigum hér-
lendis árið 1984.
I. BINDI:
Bók 437 HEB-verð kr. 630,00
II. BINDI:
Bók 447 HEB-verð kr. 630,00
SIDNEY SHELDON:
EF DAGUR RÍS
Hluti af söguþrœðinum: Tracy Whitney er
tvítug, ólétt, háttsett í banka og ætlar að gift-
ast ríkum syni úr einni elstu ætt Bandaríkj-
anna. Henni er þá tilkynnt að móðir hennar
hafi framið sjálfsmorð. Maðurinn sem kom
henni til þess ræðst nú að Tracy. Hún sleppur
naumlega við nauðgun, er ákærð fyrir þjófnað
og morðtilraun og dæmd í fimmtán ára fang-
elsi. Tracy ákveður að hefna sín grimmilega
á illvirkjunum, og beitir til þess brögðum sem
koma henni í koll. Helstu vopn hennar eru
fegurðin og gáfurnar. Hún þeytist milli New
Orleans og London, frá París til Biarritz, frá
Madrid til Amsterdam. Og hittir mann sem
hrífur hana, því hann á líka litríkan feril að
baki.
Bók 456 HEB-verð kr. 780,00
FRANK G. SLAUGHTER:
DYR DAUÐANS
Frank G. Slaughter er víðfrægur fyrir sínar
skemmtilega skrifuðu og spennandi skáld-
sögur. Þetta er sagan um alræmda hryðju-
verkakonu, illa anda og myrk öfl. Hér fer
höfundurinn á svið dulrænnar spennu svo
sumum þykir nóg um. En þeir sem vilja virki-
lega spennandi bók ættu ekki að láta þessa
fara fram hjá sér.
Bók 411 HEB-verð kr. 400,00
JAMES BARWICK:
SKUGGI ÚLFSINS
Að kvöldi hins 10. maí 1941 stökk annar
valdamesti maður Hitlers Þýskalands, Rúdolf
Hess, í fallhlíf yfir Skotlandi. Við lendingu fót-
brotnaði hann og hélt þá samferðamaður
hans, Alfred Horn, áfram ætlunarverki Hess,
að komast til Bandaríkjanna. Hin stórkostlegu
ævintýri Horns í Bretlandi og Bandaríkjunum
fá lesandann til að standa á öndinni af spenn-
ingi. Þetta er hrollvekjandi saga af manna-
veiðum og miklum áhættum. Frá sögulegu
sjónarmiði eru getgátur bókarinnar jafn
furðulegar og ægilegar eins og raunveru-
leikinn.
Bók 416 HEB-verð kr. 400,00
E. M. CORDER:
HJARTARBANINN
Þessi einstæða saga er byggð á kvikmyndinni
The Deer Hunter, Hjartarbaninn, sem sýnd
var á Islandi fyrir skömmu síðan og hlaut
metaðsókn. Sagan fjallar um örlög ungra
manna, sem rífa sig upp úr hversdagsleika
heimabyggðar sinnar og í hildarleik stríðsins
í Víetnam. Einkunnarorð bókarinnar er til-
vitnun í Hemingway: ,,Engar veiðar jafnast
á við mannaveiðar, og þeim sem veitt hafa
vopnaða menn um langa hríð og notið þess,
þykir þaðan í frá allt annað lítils vert.“ Þýð-
andi bókarinnar er Erlingur Sigurðarson.
Bók 900 HEB-verð kr. 300,00
KEN FOLLETT:
MAÐURINN FRÁ
ST. PÉTURSBORG
Rússneski stjórnleysinginn Felix í Englandi
1914. Æsispennandi viðskipti við rússneska og
breska aðalsmenn, fátæklinga, kvenréttinda-
konur og lögregluna. Örlög sögupersónanna
eru kynngimögnuð og mannlegar ástríður
leika lausum hala. Ken Follett er einn mest
lesni reyfarahöfundur okkar tíma.
Bók 431 HEB-verð kr. 450,00
KEN FOLLETT:
NÁLARAUGA
Þetta er spennandi saga úr síðustu heimsstyrj-
öld, en jafnframt óvenjulegt ástarævintýri.
Sagan fjallar um þýskan njósnara sem hefur
dulnefnið ,,Nálin“ vegna aðalvopns hans,
flugbeitts rýtings. Segir frá æðislegum eltinga-
leik leyniþjónustu Breta við hann og tvinnast
líf ungrar stúlku á óvæntan hátt í atburðarás-
ina.
Bók 408 HEB-verð kr. 400,00
KEN FOLLETT:
ÞRENNING
í þessari bók er reynt að ímynda sér raunveru-
lega ástæðu þess að forseti Egyptalands, An-
war Sadat, sótti heim sína fornu fjandmenn
í Jerúsalem. Hér er sagt frá einhverju furðu-
legasta njósnamáli síðustu áratuga og best
geymda leyndarmáli aldarinnar. Arið er 1968.
Leyniþjónusta Israels hefur komist að því um
seinan að Egyptar, með aðstoð Sovétmanna,
munu eignast kjarnorkusprengju innan nokk-
urra mánaða - sem þýddi ótímabæran endi á
tilveru hinnar ungu þjóðar.
Bók 415 HEB-verð kr. 400,00
KEN FOLLETT:
LYKILLINN AÐ REBEKKU
Þetta er hörkuspennandi njósnasaga úr seinni
heimssyrjöldinni. Sögusviðið er Kaíró árið
1942. Rommel sækir að höfuðborg Egypta-
lands með eyðimerkurher sinn og vinnur
hvern sigurinn á fætur öðrum. Honum tekst
hvað eftir annað að koma óvinum sínum að
óvörum og það er eins og hann viti um allar
þeirra ráðagerðir. Þetta er ekki bara hörku-
spennandi frásögn um baráttuna í Kaíró, held-
ur einnig, og ekki síður, mögnuð ástarsaga.
Ken Follett heldur okkur í spennu allt til síð-
ustu blaðsíðu. Það tókst honum einnig í fyrri
bókum sínum, Nálarauga og Þrenningu.
Bók 425 HEB-verð kr. 400,00
22 Bókaskrá