Heima er bezt


Heima er bezt - 02.10.1988, Side 27

Heima er bezt - 02.10.1988, Side 27
BARNA OG UNGLINGABÆKUR JENNA og HREIÐAR STEFÁNSSON: BLÓMIN í BLÁFJÖLLUM I þessari bók eru tvær fallegar og skemmti- legarsögur: „Blómin í Bláfjöllum" og ,,Gæfu- kúlurnar", sem án efa munu hrífa yngri les- endur. Listamaöurinn Baltasar hefur mynds- kreytt. Bók 291 HEB-verS kr. 300,00 JENNA og HREIÐAR STEFÁNSSON: OG BLÓMIN ANGA Stór og falleg myndabók handa stautlæsum börnum. Myndskreyting Hólmfríðar Valdi- marsdóttur er einkar einföld og skýr, og hjálp- ar ungum lesanda við lestur bókarinnar. Bók 340 HEB-verð kr. 300,00 HREIÐAR STEFÁNSSON: BLÓMIN BLÍÐ Fáir íslenskir höfundar hafa notið jafn mikilla vinsælda hjá yngstu kynslóðinni og Hreiðar Stefánsson. - Pessi og fallega bók er prentuð með stóru og skýru letri og fagurlega mynd- skreytt af Þóru Sigurðardóttur. Tilvalin bók fyrir börn sem eru að læra að lesa. Bók 348 HEB-verð kr. 300,00 JENNA og HREIÐAR STEFÁNSSON: JÓN ELÍAS „Jón Elías var rauðhærður og freknóttur, lítill og grannvaxinn og átti heima á litlu húsi hjá foreldrum sínum, í fallegri brekku inn í miðj- um kaupstaðnum. ..." Bókin er prýdd skemmtilegum teikningum eftir Þóru Sigurð- ardóttur. Bók 365 HEB-verð kr. 300,00 JENNA og HREIÐAR STEÁNSSON: ADDA KEMUR HEIM Adda kemur aftur heim frá Ameríku eftir að hafa dvalið þar með foreldrum sínum í fjögur ár. — 86 bls. Bók 209 HEB-verð kr. 250,00 JENNA og HREIÐAR STEFÁNSSON: ADDA TRÚLOFAST Fegar Adda kemur heim til sín í jólaleyfinu, eftir sögulegt ferðalag, hittir hún Pál lækni, sem er orðinn aðstoðarlæknir föður hennar. Þetta er lokabókin í hinum afar vinsæla Öddu- bókaflokki. Teikningar eftir Halldór Péturs- son. 89 bls. JENNA og HREIÐAR STEFÁNSSON: ADDA í MENNTASKÓLA Nú er Adda komin til Reykjavíkur og orðin nemandi í Menntaskólanum. Þar eignast hún nýja vini og mörg skemmtileg atvik koma fyrir. En það skemmtilegasta er þó það, að í Menntaskólanum sér Adda í fyrsta sinn til- vonandi mannsefni sitt, og nú vakna ný áhuga- mál og nýjar vonir, sem rætast og verða að veruleika í næstu bók. Allar Öddu-bækurnar eru prýddar teikningum eftir Halldór Péturs- son listmálara. - 88 bls. Bók 234 HEB-verð kr. 250,00 GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON frá Lundi: HUGSA DÝRIN? Oft tala menn um dýrin sem „skynlausar skepnur", sem hagi sér eftir eðlishvötum en ekki vegna þess að þau geti hugsað rökrétt. I þessari skemmtilegu bók, segir Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi margar sögur af sam- skiptum manna og dýra, og leiðir sterk rök að að því, að dýrin séu ekki eins „skynlaus“ og sumir hálærðir „spekingar" vilja vera láta. Þetta er áreiðanlega kærkomin bók öllum dýravinum, bæði ungum og öldnum. Bók 366 HEB-verð kr. 300,00 GUÐJÓN SVEINSSON: HÚMAR AÐ KVÖLDI Guðjón Sveinsson hefur fyrst og fremst skrif- að spennandi unglingabækur, sem náð hafa miklum vinsældum. Þetta er fyrsta stóra skáld- saga hans fyrir fullorðna. Sagan er skrifuð á tæpitungulausu máli og fjallar um vandamál ungu kynslóðarinnar í dag. Bók 351 HEB-verð kr. 300,00 GUÐJÓN SVEINSSON: NJÓSNIR AÐ NÆTURÞELI Þetta er án efa einhver mest spennandi ung- lingabók, sem skrifuð hefur verið af íslenskum höfundi. 152 bls. Bók 238 HEB-verð kr. 300,00 GUÐJON SVEINSSON: ÓGNIR EINIDALS Þetta er kjörin bók fyrir tápmikla drengi, sem þeir leggja tæplega frá sér fyrr en þeir hafa lesið hana alla. Það er mikil spenna í frásögn- inni og alltaf eitthvað að gerast á hverri síðu. Bók 266 HEB-verð kr. 300,00 GUÐJÓN SVEINSSON: SVARTI SKUGGINN Þetta er fjórða unglingasagan, sem hinn bráð- snjalli og hugmyndaríki, ungi rithöfundur, Guðjón Sveinsson, sendir frá sér. Bók 300 HEB-verð kr. 300,00 GUÐJÓN SVEINSSON: ÖRT RENNUR ÆSKUBLÓÐ Þessi skemmtilega skáldsaga er ætluð ung- lingum og æskufólki, vinum þeirra og vanda- mönnum. Bækur Guðjóns Sveinssonar eru í sérflokki. Bók 303 HEB-verð kr. 300,00 GUÐJÓN SVEINSSON: GLATT ER í GLAUMBÆ Þessi bráðskemmtilega barnabók sem hefur verið ófáanleg lengi hefur nú verið endur- prentuð. Sagan er létt og grípandi enda sívin- sæl. Bók 399 HEB-verð kr. 500,00 GUÐJÓN SVEINSSON: GLAUMBÆINGAR Á FERÐ OG FLUGI í þessari bók koma við sögu sömu persónur og í bókinni „Glatt er í Glaumbæ“, sem út kom fyrir nokkrum árum. Hér segir frá fjöl- skyldu sem býr í sveit og segir einn yngri fjöl- skyldumeðlimanna frá. Fjölskyldan fer til Reykjavíkur og lendir þar í ýmsum skemmti- legum ævintýrum. Einnig er sagt frá daglegum störfum í sveitinni á raunsæjan hátt, enda er höfundurinn bóndi. Bók 422 HEB-verð kr. 300,00 GUÐJÓN SVEINSSON: ENN ER ANNRÍKT í GLAUMBÆ Guðjón Sveinsson er einn þjálfaðasti barna- bókahöfundur okkar um þessar mundir, enda hefur hann fengið ótvíræða viðurkenningu kaupenda og opinberra aðila á þeirri stöðu sinni. Þetta er bók í flokknum um krakkana í Glaumbæ, sem ævinlega vekja réttar tilfinn- ingar hjá ungum lesendum. Bók 445 HEB-verð kr. 400,00 Bók 241 HEB-verð kr. 250,00

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.