Heima er bezt - 02.10.1988, Page 31
GUÐJÓN SVEINSSON
Kettlingurinn
Fantasía
og rauða húsið í reyniviðargarðinum
Hér segir frá ýmsu furðulegu, er kom fyrir kettl-
ingin Fríðu Fantasíu, þegar hún fór að ieita að
Gullkóngi bróður sínum í rauða húsinu sem stóð
eitt sér og enginn virtist búa í. En Fríða Fantasía
var viss um að þar byggju bófar, sem rændu litl-
um kettlingum. Það er líf og fjör í þessu ævintýri.
Það hentar vel yngri börnum, sem enn njóta
þess að láta lesa fyrir sig. Bókin er í stóru broti
(A-4) prýdd skemmtilegum litmyndum eftir Þor-
geir Helgason.
Þetta er í senn fallegt og spennandi ævintýri á
góðu og þróttmiklu máli.
Bók 467 HEB-verð kr. 600,00
JÓN GÍSLI HÖGNASON
URÐARBÚINN
BARNASAGA
Stína á Ástöðum var orðin 11 ára. Sumarstarf
hennar var að sitja yfir ám föður síns fram til
dala og hafði hún hvolpinn sinn, Kátínu, með
sér. I hjásetunni verður Stína vör við gráan
yrðling, sem henni tekst smám saman að hæna
að sér, og er lýsing höfundar á samskiptum
einkar hugljúf og hefur
tilfinningar þeirra barna
als íslensk barnabók sem
óhætt er að mæla með.
Bók 466. HEB-verð kr. 750,00
þegar vakið sterkar
sem lesið hafa söguna
Hér er á ferðinni úrv
Bókaskrá 31