Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.04.1990, Blaðsíða 2
íslenskt samfélag hefur um langan aldur þótt friðsamlegt og menn yfir- leitt ekki þurft að óttast illyrmislega áreitni á förnum vegi, hvorki á nóttu eða degi. En nú er svo komið, i þétt- býli a.m.k. og þá ekki síst í höfuð- borginni og grannbyggðum hennar, að menn eru fjarri því að vera alls staðar óhultir og geta átt von á fólskulegum líkamsárásum af engu tilefni. Fyrir nokkru ræddi ég við greina- góðan unglingspilt úr Reykjavík, sem lýsti því, hvernig hópar ungmenna gera sér leik að því á skemmtistöðum að efna til átaka, sem ekki bera svip venjulegra strákslegra óláta, heldur virðast sprottin af sjúklegri og fanta- legri árásarhneigð. Hópar, sem ganga undir heitunum „gengi“ og „klíkur“, fara úr einu öldurhúsinu í annað og ’ velja sér fómarlömb til þess að mis- þyrma. Þessi fólskubrögð eru þó kunnust í miðborg Reykjavíkur, þeg- ar kvölda tekur og færast í aukana fram eftir nóttum, enda er ósjaldan um þau fjallað í fjölmiðlum. Virðist mönnum fátt annað til ráða gegn of- beldi þessu en hert löggæsla. Ofbeldismennirnir minna um margt á Má nokkurn Bergþórsson, bróðurson Hafliða Mássonar, sem sagt er frá í upphafi Sturlungu. Berg- þór faðir Más seldi hann Þórði Rúf- eyjaskáldi til fósturs, og óx Már þar upp og þáði illa góðan viðurgerning; og að nestlokum (þ.e. að síðustu) vinnur Már á Þórði fóstra sínum mjög og hleypur síðan til Hafliða frænda síns og tók hann við honum. Ungi maðurinn virðist ekki hafa haft ástæðu til þess hatursfulla fúl- lyndis, sem einkenndi framkomu hans, nema það hafi stafað af því, að hann var uppfóstraður af vandalaus- um. Þótt hann hafi hlotið góðan við- urgerning, eins og frá er greint, þá er ólíklegt að hann hafi notið þeirrar Ofbeldi hlýju, sem helst er að vænta í for- eldrahúsum. Myndræn er lýsing höfundar Þor- gilssögu og Hafliða á Má, sem hann kveður hafa verið óvinsælan og illa skapi farinn og ólíkan góðum frænd- um sínum. „Hann var maður mikill vexti og beinastór, skarpvaxinn, svartur og ósélegur.“ Og við getum vel séð hann fyrir okkur á ofanverðri 20. öld i svörtum leðurfötum með gljá- andi málmbólum og vopnaðan hnúfajárnum á háværu mótorhjóli, með flaksandi, illa hirtan hárlubba hverfa inn á skemmtistaði í ærandi popphávaða, hvimandi eftir fórnar- lambi til þess að misþyrma. Má Bergþórsson skorti ekki fé, enda keypti hann sér skip og fór norður á Strandir þar sem hann sval- aði ofbeldishneigð sinni ótæpt á blá- saklausu fólki. Það er fróðlegt en um leið dapurlegt að bera saman hátterni þessa pilts á öndverðri 12. öld og þeirra, sem nú hafa rofið friðinn, er lengi hefur ríkt í íslensku samfélagi og gaf því þann svip, sem margur er- lendur gestur hefur haft á orði og dáðst að eins og ómenguðu andrúms- lofti og tæru vatni, sem hér er ennþá hægt að njóta. Og þá hvarflar að manni, hvort þessi annarlegu sortaský yfir íslensku samfélagi kunni að vera fyrirboði nýrrar Sturlungaaldar, og má enn vitna til frásagnar í Þorgils- sögu og Hafliða um afleiðingar af framkomu Más Bergþórssonar, eftir morðið á Þórði Rúfeyjaskáldi, er strákur hafði hlaupið til Hafliða Mássonar frænda síns, sem tók við honum. „En Þorgils (Oddsson) fer með eftirmálið, og er þar löng frásögn um málaferli þessi og tilganga; og er þetta sagt upphaf mála þeirra Þorgils og Hafliða Mássonar.“ Það er öllum kunnugt, sem þekkja söguna, að þessir höfðingjar sóttust af svo miklu kappi, að Hafliði gekk vopnaður til dóma, en Þorgils veitti honum áverka í þinghelginni, hjó af honum fingur. Og hörðnuðu átökin þá enn, svo við lá að stórum fylking- um lysti saman í blóðugum bardaga. Öll stefndi þróun mála á Sturl- ungaöld til sívaxandi upplausnar, og þá ekki síst er yfir lauk með höfðingj- um á Norðurlandi og Guðmundi bisk- upi Arasyni á Hólum. Þá leið að lok- um þeirra siðlegu áhrifa, sem kirkjan hafði áður haft til að setja niður deil- ur. Hugsjónir, sem horfðu til farsæld- ar í þjóðfélaginu voru svæfðar, en augnablikshvatir ráðandi manna og skapsmunaduttlungar réðu mestu. Það er ekki fjarri því, að átök í þjóð- málum virðist í rikari mæli lúta þess- um lögmálum og eftirsókn manna eftir persónulegri athygli helgi óheil- brigðar aðferðir og undir kyndir æsi- fréttamennska, sem metur lítils gildi hollra hugsóna, hvað þá kristinna siðalærdóma. Koma mér til hugar orð sagnfræðingsins, Will Durants: „Hreintrúarstefna og heiðin við- horf — bæling og tjáning skynjunar og girnda — skiptast á í sögu mann- kynsins. Að jafnaði eru trú og hrein- trúarviðhorf sterkust þegar lög eru vanmáttug og siðgæðisreglur verða að annast stuðning við ríkjandi samfé- lagsskipan. Vantrú og heiðin viðhorf (að öðrum þáttum óbreyttum) magn- ast þegar lögum vex fiskur um hrygg og stjórnvöld leyfa hnignun kirkju, fjölskyldu og siðgæðis án þess að stöðugleika rikisins sé stefnt í verulega hættu. Á okkar tímum hefur styrkur ríkisins tekið höndum saman við ýmis þau öfl sem áður voru nefnd til að losa um trú fólks og siðgæðisvenjur og leyfa heiðnum viðhorfum óheft at- hafnafrelsi á nýjan leik. Sennilega leiðir óstýrilæti okkar til annars aft- urhvarfs. Siðferðisleg ringulreið getur orðið kveikja að trúarvakningu.“ 110 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.