Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Síða 4

Heima er bezt - 01.04.1990, Síða 4
JON R. HJALMARSSON Sagt til staðhátta Eyjafjöll eru fögur sveit, gróðursæl og sólrík, og þar byrjar vorið fyrr en víðast hvar annars staðar á landinu. Rismikil fjöll skýla byggðinni, en miklu ofar rís Éyjafjalla- jökull upp í 1666 metra hæð og svalar þar björtu höfði sínu í lind himinblámans. Austan Steinafjalls opnast dalur sem markast af Núpnum að vestan og Raufarfelli að austan. f framanverðum dal þessum rís Lambafell yfir sléttuna og milli þess og Steinafjalls, skammt fyrir ofan þjóðveginn, stendur höfuðbólið Þorvaldseyri og blasir fagurlega við augum á eggsléttu túni, eitt myndarlegasta og best setna býli landsins um þessar mundir. Frá Þorvaldseyri er útsýn mikil og fögur til hafs sem heiða og hvergi mun Eyja- fjallajökull njóta sín betur en af heimahlaði á Eyri og er hann þó víða fagur til að líta. Upphaf Þorvaldseyrar Þorvaldseyri er fremur ungt býli með þessu nafni. Þor- valdur Bjarnarson, 1833-1922, var kunnur maður á sinni tíð. Hann var fæddur i Stóradal, sonur Björns Þorvaldssonar, síðar bónda á Bergþórshvoli, og Katrínar Magnúsdóttur bónda á Leirum undir Eyjafjöllum Sigurðssonar.Þorvaldur var mikill dugnaðar- og athafnamaður sem víða kom við á langri ævi. Meðal annars sat hann á Alþingi fyrir Rangæ- inga um skamma hríð. Hann reisti bú í Núpakoti undir Eyjafjöllum árið 1863 og bjó þar síðan til 1886. Nokkru áður en hann hætti búskap í Núpakoti hafði hann komist yfir jörðina Svaðbæli, fremur lítið og blautlent kotbýli, sem lá næst fyrir austan Núpakot. Báðar þessar jarðir lágu undir skemmdum vegna ágangs Svaðbælisár sem oft braust úr farvegi sínum og kastaðist sitt á hvað um sléttlendið og bar með sér aur og grjót. Þegar Þorvaldur fluttist frá Núpakoti vorið 1886, reisti hann sér nýjan bæ á grundun- um upp frá gamla Svaðbælisbænum, og líkt og ýmsir aðrir landnámsmenn nefndi hann bæinn í höfuðið á sjálfum sér og kallaði Þorvaldseyri. Þorvaldur húsaði bæ sinn vel og græddi upp mikil tún. Eitt með öðru sem hann gerði var að hann reisti hlöðu eina mikla sem þá var stærsta heyhlaða á öllu íslandi. Sagan segir að hann hafi nokkru áður farið til Reykjavíkur og mælt þá stærð Menntaskólahússins við Lækjargötu. Síðan reisti hann hlöðuna og gætti þess að hafa hana alin lengri og breiðari en skólahúsið. Þorvaldur bjó á forna visu og hafði jafnan margt hjúa og mikið um- leikis. Hann var stórbrotinn í framkvæmdum og aðfanga- samur til lands og sjávar. Mjög kom hann við sögu um rekamál og þótti aðsópsmikill á stranduppboðum og raunar miklu víðar. Með árunum gerðist Þorvaldur mikill auðmaður og átti nokkrar jarðir undir Eyjafjöllum og víð- 112 Heima erbezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.