Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.04.1990, Qupperneq 8
Foreldrar og börn á Þorvaldseyri á 7. ára- tugnum. Frá vinstri: Eggert Olafsson, Ólafur Eggertsson, Sigursveinn Eggerts- son, Jórunn Eggerts- dóttir, Þorleifur Egg- ertsson og Ingibjörg Ólafsson. uppi í Valdreshéraði. Þar sátu menn i góðu samkvæmi og nutu veitinga, en heimasætur úr byggðinni klæddar þjóð- búningum gengu um beina. f þeirra hópi var Ingibjörg Nyhagen frá Valbu. Eitt af því sem hún þá gerði var að skenkja kaffi í bolla bóndans unga frá Þorvaldseyri og þannig hófust þeirra kynni. Upp úr þessu hófust bréfaskipti og réðst Ingibjörg brátt til sumardvalar á íslandi. Þegar þeirri vist var lokið, komu þau sér saman um það, hún og Eggert, að hún framlengdi dvölina. Gengu þau skömmu síðar í hjónaband og hefur Ingibjörg verið húsmóðir á Þorvaldseyri æ síðan. Ingibjörg er fædd og upp alin í Valdres og þá í fjalla- byggð skammt suður af hæstu fjöllum Noregs í Jötunheimi. Foreldrar Ingibjargar á Þorvaldseyri, Julie og Torleif Nyhagen, Valbu. Foreldrar hennar, Torleif og Julie Nyhagen, voru með nokkurn búskap og einnig stundaði faðir hennar smíðar. Það voru mikil viðbrigði fyrir Ingibjörgu að flytjast til ís- lands og einkum hefur hún saknað veðurblíðu og staðviðra sem algeng eru á æskustöðvum hennar. Einnig má sakna gróðurfars og þá einkum skóganna sem þar eru miklir og fagrir. En hún sætti sig brátt við að dveljast á fslandi, þótt landið sé bert og oft blási hart. Nokkur samskipti hefur hún alltaf við gamla landið og komu meðal annars foreldrar hennar og bróðir í heimsókn. Einnig fara þau hjónin, Ingibjörg og Eggert, stundum sér til skemmtunar til Nor- egs. Þá kemur norskt fólk gjarna við á Þorvaldseyri, þegar það á leið um ísland og tengsl hefur Ingibjörg við norskt fólk sem hér er búsett. Ingibjörg talar íslensku með ágætum og fellur vel inn í umhverfi og félagslíf eftir því sem tæki- færi gefast. En í samtali tók hún fram að hún yrði alltaf norsk, þrátt fyrir langa búsetu hér á landi, en vel mætti þó hugsa sér að eiga tvö lönd. Á íslandi á hún líka 4 börn og 13 barnabörn. Ný kynslóð vex úr grasi Þau Ingibjörg og Eggert á Þorvaldseyri eignuðust fjögur börn. Elst er Jórunn, f. 1950. Húngiftist Sveini Tyrfingssyni og búa þau á Lækjartúni í Ásahreppi. Næstur í röðinni er Ólafur, f. 1952. Hann lauk búfræðinámi og kvæntist Guð- nýju Valberg, kennara. Þau búa nú á Þorvaldseyri. Þriðji í röðinni er Þorleifur, f. 1955. Hann kvæntist Þorbjörgu Böðvarsdóttur og eru þau búsett í Vestmannaeyjum. Yngstur systkinanna er Sigursveinn, f. 1958. Hann kvæntist Bryndísi Emilsdóttur og búa þau á Ási í Mýrdal. 116 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.