Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Blaðsíða 9

Heima er bezt - 01.04.1990, Blaðsíða 9
Stjórn Búnaðarsambands Suð- urlands upp úr 1950. Frá vinstri: Sigurjón Sigurðsson, Raftholti, Eggert Ólafsson, Þorvaldseyri, Dagur Brynjólfsson, Gaulverja- bæ, Sveinn Einarsson, Reyni og Páll Diðriksson, Búrfelli. Búskapur Eggerts og Ingibjargar Hjónin á Þorvaldseyri hafa löngum búið með miklum ágætum, haldið vel í horfinu og víða aukið við. Bústofninn hefur aukist nokkuð frá tímum Ólafs og einkum hefur verið fjölgað í fjósi. Varð það þá að ráði að byggt var mjög svo tæknivætt 80 kúa fjós fyrir um áratug. Flest hafa þau verið með um 65 mjólkandi kýr og talsvert af geldneytum að auki. Flest hús á jörðinni hafa verið byggð að nýju, nema íbúðarhúsið frá 1918 sem frá byrjun var ákaflega vandað og endist með prýði. Nokkru eftir 1950 fékk Eggert fyrsta traktorinn og fleiri fylgdu á eftir auk annarra véla og tækja. Upp úr því hófst sú alhliða tæknivæðing sem gengið hefur yfir í landbúnaði um allt land og óvíða í ríkara mæli en á Þorvaldseyri. Með vélvæðingu eftirstríðsáranna hóf Eggert stórfellda framræslu á blautum mýrum sunnan þjóðvegar. Síðar var land það brotið og smám saman tekið til rækt- unar. Víða þurfti að djúpplægja landið, því að í því liggja þétt leirlög sem ógjarna hleypa vatninu í gegn. Allt þetta hafðist þó með tímanum og þarna hafa komið til mikil tún og akrar á seinni árum. Auk þess að vera með stórt kúabú hefur Eggert alltaf verið með gott fjárbú, þótt ekki sé það eins stórt og hjá föður hans, þegar best lét. Einnig var hann með nokkra svínarækt og dálítið af holdanautablendingum á seinni árum. Bleikir akrar Fyrir áhrif frá hugsjóna- og atorkumanninum Klemenz Kristjánssyni á Sámsstöðum tók kornrækt að breiðast út í Rangárþingi og víðar. Eggert á Þorvaldseyri var einn þeirra sem hóf kornyrkju í smáum stíl þegar upp úr 1950. Gekk það vel og fór hann síðar í félagsskap við aðra út í meiri kornrækt og þá á Skógasandi, sem bændur höfðu þá tekið til túnræktar að hluta með aðstoð Landgræðslu ríkisins. Kornfélag þetta leystist upp með tímanum, en Eggert hélt ótrauður áfram með akra sína og þá á heimajörðinni. Hann segist oftast hafa verið með bygg á þetta 5-7 hekturum lands og að uppskeran hafi verið á bilinu 20-30 tunnur af hektara. Þetta heimaræktaða kjarnfóður reyndist afar vel handa öllum búfénaði, en er mest notað fyrir mjólkurkýr og svín. Skoðun Eggerts er sú að landbúnaður sé því aðeins vel rekinn að bændur framleiði sem mest af fóðri sjálfir handa búpeningi sínum. Félagsstörf bóndans á Eyri Arið 1922 bundust ungir menn undir Eyjafjöllum sam- tökum undir forystu Björns Andréssonar frá Berjaneskoti um að læra að synda. Þeir gerðu sér sundlaug við heitar laugar nálægt Seljavöllum með því að grafa þró niður í mölina og hlaða veggi úr torfi og grjóti. Fljótlega var þetta Jarðyrkjustörf á Þorvaldseyri, Eggert Ólafsson stendur við traktorinn. Heima er bezt 117

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.