Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Side 22

Heima er bezt - 01.04.1990, Side 22
Herðubreið. ,,Aðeins þeir útvöldu bera nafn sitt með eins miklum glæsibrag og þessi fjalladrottning. “ frá sulti og sárum þjáningum. Það var hvort tveggja í senn karlmannlegt og bar vitni um góðan dreng. -----Um kvöldið, þegar við erum að „setja á“ í bókahillunni í Péturs- kirkju, rekumst við á óvenju litla bók, sem vafin var vandlega inn í bréf. Við Jón töldum það víst, að þetta væri sálmabók og fundum þá hið innra með okkur að auðvitað væri þetta bending frá æðri stöðum um að gleyma nú ekki þakkargjörðinni til hans, sem öllu stjórnar. Og án þess að hafa neinar vöflur hófum við upp raust okkar og sungum fullum hálsi: „Faðir andanna, frelsi landanna, ljós í lýðanna stríði,“ hljómaði nú tvíradd- að í Péturskirkju. Samtímis flettum við bréfinu utan af sálmabókinni. En mikil var sú mildi að við lentum ekki út af þessu fallega lagi, þegar við sá- um hvað kom innan úr bréfinu. Það var nefnilega engin sálmabók, sem við höfðum gómað, heldur blasti þarna við okkur hjartadrottning í fullum skrúða á fremstu síðu. Þetta hafði engum okkar hugkvæmst. Þó sáum við strax hvaða snjallræði var falið í þessu. Ef við hefðum t.d. orðið hér veðurtepptir, þá var ekki ónýtt að geta tekið slag. Þetta var líka líkt Mývetn- ingum, sem eiga ráð undir rifi hverju og eru manna snjallastir að þreyta fangbrögð við móður náttúru, þegar fýkur í hana. Þegar við höfðum lokið kvöldverk- um og krotað okkar fábrotnu ferða- sögu á minnisblöð frúarinnar, þótti okkur bezt að leggjast á bakið, hlið við hlið, breiða vel yfir okkur og gefa munnunum fullt frelsi þar til svefninn kæmi með silkimjúkar hendur og — lokaði þeim. Það skeði líka fyrr en varði og eftir stutta stund varð und- arlega hljótt í Péturskirkju. Þó mátti greina að þar sváfu þreyttir menn, sætt og rótt.---- „Er þetta virkilega dagsbirtan?“ „Nei,“ sagði Jón. „Það mun vera máninn á heiðum himni og sennilega er mikið frost.“ Ég snarast út til að fá sannanir. „Allt í himna lagi,“ orga ég úti. „Stafalogn, heiður himinn og vafa- laust komið glymjandi gangfæri. Eftir tvo-þrjá tima verður orðið sauðljóst. Þá verðum við Óskar komnir út undir Hlíðarhaga, en þú að nálgast Norð- mel.“ „Gott og blessað. Við skulum þá hafa okkur af stað sem fyrst,“ segir Jón. Svo kveiktum við á lampanum. „Mál að vakna, Óskar minn,“ og Jón leggur hönd á þá öxl hans, sem upp sneri. En Óskar bregður snöggt við, gefur Jóni olnbogaskot og er samstundis kominn á hina hliðina. „Við skulum lofa honum að lúra, blessaður, á meðan við hitum drykk- inn. Hann verður snar á fætur, þegar hann opnar augun.“ Svo þegar prímusinn fór að suða tókum við Jón lagið og nú var ekki dregið af. Við litum báðir til Óskars og hugsuðum auðvitað það sama. „Blessaður snarastu þá á fætur því nú er ljómandi veður og komið bezta gangfæri. Drykkurinn er tilbúinn og allt í lagi.“ Eftir að hafa lagfært allt. sem við settum úr skorðum í Péturskirkju, lokuðum við henni vandlega. Við báðum henni svo allrar blessunar með hrærðum huga, alveg eins og prest- arnir okkar, þegar þeir eru að biðja fyrir sjálfum sér, söfnuðinum. forset- anum og hinni forvitru landsstjórn. Og við mæltum allir á einn veg. Þessar nætur, þetta yndislega veður og þess- ari öræfaferð mundum við aldrei gleyma. Norður undir svonefndum Svein- um við Sveinagjá skildum við. Og enn var stafalogn. Jón tók að sér að fara norðaustur að Jökulsá, um Dettifoss, og leita í öll undirlendin með henni ásamt Hólmatungum að Svínadal. Óskar tók stefnu austan við Eilíf, því hann átti að sjá í Grænulág og um- hverfi hennar. Að því loknu átti hann að koma vestur í Hliðarhaga. Þar skyldum við hittast. það bundum við fastmælum. Ég stefndi fyrst mikið í vestur á Hágöng, því um allt svæðið austan við þau ætlaði ég að sjá sóma- samlega norður að Hlíðarhaga. Gullinn bjarmi roðaði austurloftið og boðaði herferð á veldi mánans, sem enn blikaði svo fagur og bjartur í norðvestri. Óviðjafnanlegir félagar á öræfagöngu. -----Óskar beið mín á Hlíðarhaga. Hann fór hratt yfir því fæturnir voru fráir og færið gott. Ég fór talsverðan sveig og nam oft staðar eftir að sól gyllti fjöllin, því sjónauka hafði ég góðan þótt seinlegt væri að leita í honum. Hann stækkaði 30 sinnum og var aðeins fyrir annað augað. Ég var orðinn honum vanur og gat ekki án hans verið í göngum. En hvergi sá ég nú kind. En ég sá gamlar hreindýra- slóðir. Enn héldu þau sig hér á æsku- stöðvum, frjáls og fögur. Hér sá ég þau líka fyrir fáum árum að vorlagi, fimm í hóp. Ég lá í leyni skammt frá þeim og virti þau fyrir mér. Þau stukku og léku sér og ég varð stór- hrifinn af lipurðinni og léttleikanum. Ef til vill fengi ég líka að sjá þau í dag. Þá óraði mig ekki fyrir því, að eftir fá ár yrðu dagar þeirra taldir hér á Mý- vatnsfjöllum. Þó vissi ég vel, að síð- 130 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.