Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Side 23

Heima er bezt - 01.04.1990, Side 23
ustu haustin hafði enginn kálfur sézt í fylgd með þeim. Það var ískyggilegt. Ég er nú búinn að steingleyma lög- unura, sem þarna voru sungin, enda kunni ég þau ekki öll. Það voru eld- gömul rímnalög, sem Jón kunni, geysi hástemmd sum og kraftmikil. Ég revndi að fylgja sömu tónhæð en hvort það hljómaði allt af þori ég ekki að fullyrða. Sumar vísurnar, sem við kvrjuðum. man ég þó enn. Þær voru eftir Þuru í Garði og Freymóð málara. Og þótt þær séu eitthvað úr lagi færðar eftir þennan líka óratíma, þá veit ég að höfundar þeirra virða mér það til vorkunnar. Og eðlilega bvrjaði Freymóður: „Væri ég orðinn ungur sveinn engri vildi’ ég gefa neinn snefil af mínum ástararði, annarri konu en Þuru í Garði. Og Þura í Garði svaraði: Hvað er að óttast komdu þá, hvar eru lög, sem banna? Ég get lifað alveg á ástum giftra manna. Þá orti Freymóður: Þökk fyrir boðið, ég sendi þér svanni, samúðarkveðju frá giftum manni. Hvað lögin banna, ja — hvort ég þori, ég kem til þín strax á næsta vori.“ Nú rumskaðist Óskar. Og eitthvað sönglaði í honum. Það líktist næstum hlátri. En svo náði hann sér aftur á strik. Við Jón hertum á raddböndun- um svo rumdi í Péturskirkju: „Þá eru kiljur þagnað-a-a-a-ar. Þá er létt um sporið. Fullur heimur fagnað-a-a-a-ar. Freymóður og vo-o-o-o-rið.“ Nokkru síðar kvað Þura. Og nú kom Jón með nýtt lag svo hástemmt að ég fékk hósta: „Það var illt að okkar snilli og ástir beggja lentu í banni. Freymóðs er mér horfin hylli heimurinn varð af lista- ma-ha-ha-ha-anni.“ Tvær síðustu ljóðlínurnar voru sungnar með svo sárum trega, að það lá við að ég tárfelldi. Þvílík vonbrigði. Þau voru svipuð því og hefði ég skotið á heiftarlegan bitvarg í dauðafæri en hann farið jafngóður. „Það er naumast að þið séuð kátir í morgun.“ segir Óskar upp úr þurru. Hann hafði leikið á okkur. Á Hlíðarhaga gripum við Óskar okkur bita uppi á mæninum á gamla kofanum, sem enn stóð á verði yfir sæg af minningum, sem örfáir fórn- fúsir menn höfðu fest á pappír svo þær gætu vitnað um kjark og þrek feðranna horfnu. Mér reis hugur við, er ég hugsaði til þeirra, sem hér höfðu barist þar til yfir lauk. Og mér varð litið umhverfis mig upp í sólgyllt Há- göngin, þar sem stormaherir veturs konungs æða svo oft óstöðvandi og miskunnarlausir og grafa allt lifandi og dautt undir hvítum fannfeldi. í þeim gjörningaveðrum er ekki heigl- um hent að vera einn á ferð hér uppi, þegar skammdegisnóttin bindur líka fyrir augu vegfarandans. Við Öskar hlaupum við fót upp brekkurnar norðvestur af Hlíðarhaga. Þar myndast stórt þrep norðan og austan í fjöllunum. Það heitir Réttar- grundir. Þar eru mýrar og valllendis- teigar ásamt móahöftum og brekku- brúnum. sem skefur af þegar eitthvað golar. Þar er því mjög jarðsælt. Útsýn er hið fegursta til austurs og suðurs og þó er Eilífur, sem rís upp norðan og austan við, meginprýðin ekki sízt ef hann speglar sig í lygnum og sólgyllt- um Eilífsvötnum. Þannig var hann, er ég gisti á Hlíðarhaga síðast yndislega vornótt, þegar ég sá hreindýrin bezt. Þá hljóp ég norður á Hágöngin og horfði yfir vötnin. Það var ógleyman- leg sjón. Og þrír himbrimar sungu þá fullum hálsi lengst norðvestur á boln- um. Mér fannst óður þeirra vera sambland af hrifningu og þökk fyrir frelsið hér uppi, fegurð og mildi næt- urinnar og fyrir gnægð matar, sem þeir höfðu hér. Ég kíkti lengi á þá og sá þá taka nokkur djúp köf. Og ekki gat ég þá betur séð en silungar vöktu nokkrum sinnum úti á dýpinu þó fullyrt væri þá, að í þeim væri enginn silungur til, aðeins hornsíli. Jafnskjótt og við komum upp á fyrsta hjallann, Réttargrundirnar, var öllum þessum minningamyndum sveiflað burtu af óvæntri sjón. Kinda- spörð. Húrra! hrópuðum við báðir í einu. En hvað þau eru annars skrítin, svona aflöng og gljáandi. Við tókum nokkur og skoðuðum þau. Víst eru þetta kindaspörð, sagði trúin, en efinn streyttist á móti, steinþegjandi, eins og hann er vanur. Biðum við! Hvað er þama? Gömul hreindýraslóð. Við lit- um hvor á annan. Og upplitið gaf til kynna hvað við hugsuðum. Við horfðum í kring um okkur. Þarna er hreindýr, yzt á Grundunum. „Hvað ósköp er hausinn á því lít- ill,“ segir Óskar. Ég gríp sjónaukann og miða. „Kind. Grá ær og lamb. — hvít gimbur. Nú fer það að lagast.“ Og nú ljómuðu andlitin á báðum og sigurvonin sópaði öllum vonbrigðum og efa út í hafsauga. Samstundis var ærin horfin. Hún þaut norður í loft- köstum. Og við Óskar tókum sprett- inn á eftir. Þegar við komum á blettinn, þar sem ærin hvarf, sáum við ekki neitt nema örfá spor, þar sem hún hafði sloppið í á skafli. Hún sýndist hafa stefnt í norðaustur að vötnunum. Við hertum á sprettinum, þar til við kom- um austur á Hágangnahornið, þar sem við sáum niður að vötnunum. En ærin var ósýnileg. Bölvuð boran. Sú ætlar ekki að láta taka sig. „N-e-e-ei. Þarna er hún þá. En sá hraði.“ Við sjáum hvar ærin þýtur norður með vatninu að vestan og ætlar ber- sýnilega austur fyrir það að norðan og svo að líkindum suður með því að austan. Þar snýr hún á okkur. Ég bið Óskar í drottins nafni, að sjá um að hún geti ekki sloppið vestur. Ég ætli að reyna að komast fyrir hana og sveigja hana norður vestan við Eilíf. Á sömu stund sá ég að til þess var aðeins ein leið. Ég varð að komast niður að vötnunum og austur yfir þau yzt og stytta þannig á mér leið, hvernig sem það gengi. Ég hentist því á ská út og niður fjallsöxlina er við stóðum á, þótt hún væri brött og talsvert svellrunnin. Slysalaust komst ég samt niður rétt sunnan við læk, sem rennur þar í vötnin. Þar var auð vök. Og um leið og Heima er bezt 131

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.