Heima er bezt - 01.04.1990, Page 25
SÖGULEGAR LJÓSMYNDIR XXVIII
Gömul mynd frá Möðrudal
HEB barst þessi skemmtilega mynd frá Sigþóri
Bjarnasyni í Tunguhaga í Vallahreppi. Er hún úr
gömlu dagblaði og fylgdi henni eftirfarandi texti:
„Myndin er tekin um eða fyrir 1940 í Möðrudal á
Fjöllum og eru hér Seyðfirðingar í skemmtireisu á
fyrsta yfirbyggða langferðabílnum á Austurlandi. Á
myndinni eru f.v.: Gísli Jónsson umboðsmaður Natans
& Olsens á Seyðisfirði (faðir sr. Gunnars í Glaumbæ),
Einar Hilmar Bjarnason starfsmaður Apóteksins á
Seyðisfirði, Baldvin Stefánsson hreppstjóri í Stakka-
hlíð í Loðmundarfirði, Vilhjálmur Jónsson í Möðru-
dal, Gunnlaugur Jónasson gjaldkeri Útvegsbankans á
Seyðisfirði, Halldór Jónsson kaupmaður og konsúll,
Brynhildur Haraldsdóttir símritari (kona Emils Jóns-
sonar), Gestur Jóhannsson agent í Múla (tengdafaðir
Jóns Skaftasonar borgarfógeta), ?, Jóhann Kröyer bíl-
stjóri, Sigrún Sigbjörnsdóttir (kona Halldórs), Guðrún
Guðmundsdóttir (kona Gísla), Sigríður Jensdóttir
(kona ljósmyndarans), Hulda Sveinsson, síðar læknir,
Jón Gestsson, síðar rafveitustjóri á ísafirði, Vilhelmína
Jónsdóttir (kona Gunnlaugs) og Hermann Hermanns-
son lögregluþjónn. í dyrum hússins stendur Agnar
Pálsson heimamaður í Möðrudal. Myndina tók Eyj-
ólfur Jónsson klæðskeri og bankastjóri á Seyðisfirði.“
Því er við að bæta, að bílinn á myndinni á Sigþór í
Tunguhaga og er hann ennþá eins og hann leit út,
þegar myndin var tekin. Bílinn átti þá Jóhann Þ.
Kröyer, sem átti heima á Eskifirði og hafði áætlunar-
ferðir milli Eskifjarðar og Hallormsstaðar, auk þess
sem vagninn var mikið notaður til skemmtiferða. —
Við þökkum Sigþóri myndina og góðar kveðjur.
B. G.
Heima er bezt 133