Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Side 29

Heima er bezt - 01.04.1990, Side 29
Sonurinn kvað: Sjökrónuhöfuð sælt ég sá. Sannlega ég segi yður, að maður vildi meyju fá, í makindum hann settist niður. En þetta vildi ei ganga greitt, því grýttar voru allar brautir. Og það var sem mér þótti leitt að linuðust engar sárar þrautir. Það skal tekið fram, að eg hefi hér farið eftir eigin hug- myndum um uppsetningu og greinarmerki, því hvergi hefi eg séð þetta á bókum. Einnig vil eg geta þess, að eg hefi séð mjög vel gerðar bögur eftir niðja þessara feðga. Um 1940 var eg nokkur vor og haust í svonefndri „vegavinnu“, sem að mestu var í því fólgin að aka möl í „pytti“, sem myndast höfðu í vegunum frá síðustu „vertíð“. Voru þar samtímis margskonar manngerðir, eins og þeir kannast við, sem til slíkra starfshópa þekkja. Eins félaga minnist eg, sem nokkuð gerði að því að setja saman bögur. En flestar munu þær nú „týndar og tröllum gefnar“. Hér kemur samt ein: Kallar moka möl á bíl, óðum stækkar grúsin. Vegur batnar, óðum vel. svo umferðin gengur betur. Geta vil eg þess, að höfundur þessi var náskyldur al- kunnum hagyrðingum, þingeyskum og eyfirskum. Einn „húsgang" man eg frá barnsárum mínum, en veit á honum engin deili: Nú er hríð á norðaustan. Nú er skíðaveður. Nú á að grafa Möngu í dag. Að lokum set eg svo einn forláta „dikt“, sem eg hvorki veit haus né hala á, eða hvernig á að setja upp né stafsetja: Illiriði Napólí illiriði ronkarivetta. Illiriði Napólí rittimakkaron. Volsaspera, suplísera, ronkúrera. Illiriði Napólí rittimakkaron. Tvöfalda 1-ið í illiriði heyrði eg alltaf borið fram eins og í stuttnefninu Elli. Með kærri kveðju. Páll Helgason. - Frumur... Framhald af bls. 135. sem fæst við byggingarlag fruma nefnist frumufræði, en greinin sem fæst við litninga og erfðir nefnist erfðafræði. Hefur hún verið notuð mannkyninu til hagsbóta með kyn- bótum á dýrum og jurtum. í hefð- bundinni erfðafræði eru kynbætur stundaðar þannig að tveim einstakl- ingum sem taldir eru geta bætt hvorn annan er æxlað saman og afkvæmin notuð eða valið úr þeim. Nú á seinni árum hefur tækninni hins vegar fleygt fram. Komin er fram ný fræðigrein nefnd erfðaverkfræði. Þar taka menn erfðavísa, það er að segja örstutta búta af litningi úr einni frumu, og flytja þá yfir í aðrar frumur, oft í frumur alls óskyldra lífvera. Þetta hefur í för með sér að lífverur geta framkvæmt ýmislegt sem þeim var ómögulegt áður. Með þessari nýju tækni opnast geysilegir möguleikar sem menn eru sólgnir í að nýta. Lyfjaframleiðsla ýmiskonar gæti orð- ið ódýrari og hraðvirkari. Fram hafa komið hugmyndir um að sameina í einum gerli eiginleika vambargerla jórturdýra og víngerilsins og þá mætti með þessari nýju lífveru framleiða alkohól úr timbri, alkohól sem mætti nota sem eldsneyti. Þá hafa menn gælt við þá hugmynd að flytja niturbind- andi hæfileika rótargerlanna, sem lifa t.d. á lúpínu og smára, til annarra gerla og þannig auka lífrænt nitur í heiminum. En erfðaverkfræðinni fylgja líka hættur. Maðurinn getur nú búið til og misst út einhverja skað- ræðisbakeríu sem væri honum sjálf- um og lífheiminum hættuleg, og menn hugleiða einnig hvort ekki megi á þennan hátt endurbæta manneskj- una með tilliti til eftirsóknarverðra eða æskilegra eiginleika. Þarna vakna ýmsar spurningar siðfræðilegs eðlis, og greinilega erum við hér komin að tvíeggjuðu og nokkuð hættuleg efni. Ég vil því að lokum birta ljóð eftir Jakob skáld Thorarensen þar sem hann bendir á hættuna á misnotkun vísindanna: Já, hvort skal nú heldur eftir öld að auðn og nauð fari þá með völd í menguðum geimi og hálfdauðum heimi, eða heiðara líf með fegri skjöld? Vor öld er fjölhæf og óheimsk sögð, en önnum kafin að magna flögð; hún verkhyggni beitir og vísinda neytir. en ver þeim um of í klækjabrögð. Því óttast og heimur sjálfan sig og sér nú framundan myrkan stig, það er sem hann gruni, að sú ókind þar muni, sem erfitt reynist að ganga á svig. — Þá verndun guðunum veita ber, að vaxi einfeldni á jörðu hér, hin auðtryggða og hljóða. — Mest illindi þjóða skóp aukna „menningin“, því er ver. Heimaerbezt 137

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.