Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Qupperneq 34

Heima er bezt - 01.04.1990, Qupperneq 34
— Ég sé að einhver hefur verið svo vænn að sækja Skjóna fyrir mig. Takk fyrir það. Hafliði ók sér í sætinu. — Það var ekkert. Það var alltaf um það talað að ég lánaði þér Skjóna næst er við riðum út. Þú skýtur hesti undir Kristínu, er það ekki Sigurpáll? Sigurpáll starði á Hafliða. Alltaf gat þessi maður komið honum á óvart. Hann sem hafði haldið að Hafliði vildi sjálfur lána Kristínu hest. — Er það ekki? Sigurpáll hrökk upp úr hugsunum sínum og roðnaði. — Jú, jú, auðvitað. Það var föngulegur hópur er reið úr hlaði á Stóra-Núpi skömmu seinna. Sigurlaug átóð á tröppunum og horfði á eftir þeim, uns þau hurfu sjónum. Hún var stolt af þessu unga fólki. Vonandi yrði þessi dagur þeim til gleði. Henni fannst einhvern veginn, að ef til vill yrði hann tímamóta- dagur fyrir einhver þeirra. En kannski voru þetta einungis órar gamallar konu. Það var margt til skemmtunar á Engjunum þennan dag. Unga fólkið keppti í íþróttum, hlaupum, stökkum og auð- vitað var gliman, þjóðaríþróttin, í hávegum höfð. Karl- mennirnir frá Stóra-Núpi tóku þátt í íþróttunum af lífi og sál. Hafliði var, eins og ávallt, fremstur í flokki í hlaupum og stökkum. Hann var svo kattliðugur að unun var á að horfa. Sigurpáll og Friðgeir létu sér nægja glímuna, enda voru þeir glímumenn góðir. Að lokum voru aðeins þeir tveir eftir. Allir biðu spenntir; myndi vinnumaðurinn hafa húsbóndann. Hafliði gekk til stúlknanna, er sátu á grasbala í góða veðrinu og fylgdust með. Hann settist milli Vilborgar og Kristínar. — Viljið þið veðja hver hefur það? Vilborg hristi höfuðið, en Kristín hvíslaði: — Friðgeir vinnur. Hafliði hnyklaði brýrnar. Gat það verið að hún væri að hugsa um Friðgeir, stúlkan sú? Hann gat varla trúað því. Friðgeir stórbóndi og oddviti var sérstæður maður og of stór biti fyrir venjulega stúlku. Glíman varð hörð, og lengi vel mátti ekki á milli sjá hver hefði það. Sigurpáll var þyngri maður, en löng þjálfun kom Friðgeiri til góða. Að lokum var Friðgeir hlutskarpari. Sigurpáll stóð upp þungur á svip og stikaði á brott. Mikil fagnaðarlæti kváðu við. Oddvitinn varð glímukóngur einu sinni enn. En Hafliða leist ekkert á blikuna. Hann þekkti vin sinn það vel, að hann vissi að hann ætti erfitt með að þola tapið. Nú var þungt í Sigurpáli og þá var hann viss með að skvetta duglega í sig. Hafliði gekk fram á Sigurpál, þar sem hann sat á þúfu, þungur á brún, búinn að innbyrða stóran hlut úr vasapel- anum sínum. — Þú stóðst þig vel, vinur. Það rumdi í Sigurpáli. — Það geta ekki allir unnið, Sigurpáll minn. En þetta er nú bara leikur. Vertu glaður og njóttu þess að vera til. Veðrið er yndislegt og hér úir allt og grúir af gullfallegu kvenfólki. Sigurpáll var enn jafn brúnaþungur. — Það er til lítils að líta á þetta kvenfólk. Það sér ekkert nema þig. Hafliði settist niður við hlið vinar síns. — Hættu þessu voli, maður. Þér væri nær að gefa mér með þér en sitja hér einn og hella í þig. Ég veit líka alveg hvað þú ert að hugsa um. En þú hefur enga ástæðu til að örvænta, ekki mín vegna. Ég hef hér augastað á einni stúlku og önnur kemur ekki til greina. Sigurpáll hnussaði en rétti fleyginn samt í átt ti! Hafliða. — Þig langar kannski til að vita, hver það er? Hafliði kímdi, en Sigurpáll sat enn með signar brýr. — O, ætli ég viti það ekki. — Það getur vel verið, en ég ætla að segja þér það samt. Það er hún Vilborg okkar. Hún er mér kærust af öllu því, sem dregur andann hér um slóðir. Sigurpáll gapti af undrun, en svo færðist bros yfir and- litið. — Fáðu þér meira úr fleygnum vinur. Vilborg; ég held þér sé ekki of gott. Hafliði kímdi, kvöldinu var borgið. Það var hinn víðfrægi gamli Gústi, er sá um að halda fjörinu uppi. Hann var gamall maður, en úr hverjum and- litsdrætti skein kátína og hann var ódrepandi á nikkuna. Hann gat staðið upp á endann tímunum saman og spilað, án þess að hvílast. Einstaka sinnum kom einhver góð- hjörtuð kona með kaffisopa handa Gústa. Þá ljómaði hann enn meir, skellti í sig kaffinu og hélt svo ótrauður sínu striki. Það var mikið dansað og glatt á hjalla. Eldsnöggar augnagotur flugu milli unga fólksins. Ástarævintýri voru í uppsiglingu og einhvers staðar beið Amor karlinn í laumi með bogann spenntan. Vinnumennirnir á Stóra-Núpi dönsuðu við vinnukonurnar til skiptis. Pils sveifluðust og roði kom í vanga. Tíminn leið. Sumir góðbændur urðu drukknir, settust afsíðis og röfluðu sín á milli um skepnu- höld og veðurfar. Eldri konurnar héldu sig mest í kaffi- tjaldinu. Það var svo margt að spjalla og svo langt milli þess er þær hittust. Bændur þeirra voru heldur ekki svo duglegir við að stíga dansinn. Þeir vildu láta unga fólkið um það. Það var langt liðið á kvöld er Gústi tók sér örstutt hlé. Hann þurfti að komast afsíðis og skila kaffinu, er góð- hjörtuðu konurnar höfðu fært honum. Hafliði dró Sigurpál með sér út í horn. Heyrðu vinur, við Vilborg ætlum að fá okkur göngutúr. Þú þarft ekkert að undrast þó við hverfum af staðnum. Við sjáumst þá bara í fyrramálið. Hafliði hnippti í Sigurpál. — Þú ert viss um að allt verði í lagi? Sigurpáll brosti út undir bæði eyru. Hann var orðinn dálítið drukkinn og hafði vaxið kjarkur eftir því. Jú, honum var sko sama þó Hafliði færi á braut með kærustunni. Það var bara betra. Hljóðlega læddust turtildúfurnar á braut. Vilborg var rjóð í kinnum og eitthvað nýtt blik sást í augunum. Eftir- vænting. Gústi greip nikkuna að nýju og spilaði fjörugan skottís. 142 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.