Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1990, Qupperneq 35

Heima er bezt - 01.04.1990, Qupperneq 35
Sigurpáll flýtti sér til Kristínar og bauð henni upp. Þau héldu á stað út á gólfið og Sigurpáli fannst hann svífa áfram. Nú var eins víst að sigurinn væri í höfn. Næsta lag var rólegur vals. Sigurpáll tók þétt utan um Kristínu, en hún færðist undan, er hann lagði vanga sinn að hennar. — Svona nú, tautaði Sigurpáll, en Kristín streyttist á móti. — Viltu ekki vanga mig, stúlka? — Nei. Kristín var orðin dreyrrauð í framan og reyndi nú af öllu afli að losa sig úr fangi Sigurpáls. — Veistu ekki að Hafliði og Vilborg eru farin heim, saman? Kristín barðist um, en Sigurpáll hélt henni sem í skrúf- stykki. — Það er ekki það. Það er annar maður sem ég er að hugsa um. — Hvað þá, bölvuð vitleysa. Sigurpáll gerði sér lítið fyrir og kyssti Kristínu remb- ingskoss á munninn. Hún barðist um á hæli og hnakka, en allt kom fyrir ekki. Þá var allt í einu þrifið harkalega í öxlina á Sigurpáli og áður en hann vissi af lá hann í einu homi salarins með auman kjálka. Sigurpáll sá rautt svo reiður var hann. Hver dirfðist að slá hann? Sigurpáll spratt á fætur og hugðist lúskra á þessum lúsablesa, sem var að skipta sér af einkamálum hans. Það voru allir hættir að dansa og biðu í ofvæni eftir að sjá endi þessara mála. Sigurpáll sá rautt. Hann starði á manninn, er nú hélt utan um Kristínu og hún hallaði sér að brjósti hans. Þetta var Friðgeir, húsbóndinn sjálfur. Hann hafði sigrað í annað sinn þennan dag. Sigurpáll lét hnefann síga. Allt vín var nú runnið af honum og hann var náfölur. Svona fór um sjóferð þá. Það var aumkunarverður maður, er rölti út úr samkomuhúsinu. Sigurpáll leit hvorki til hægri né vinstri. Axlir hans voru signar og það var sársauki í augnaráðinu. Hann gekk hæg- um skrefum í átt til hesta sinna og lagði á. Svona fór það. Sumir fá allt, en aðrir ekkert. Gústi gamli hélt áfram að spila og Sigurpáll heyrði harmonikutóna hljóma á eftir sér, þegar hann hleypti fram dalinn. í grænum hvammi fjarri alfaraleið sátu þau, Hafliði og Vilborg. Það ljómaði af svip þeirra og það var ekki laust við að Vilborg færi hjá sér. Hún lagaði fötin sín eftir bestu getu, en settist svo hjá Hafliða. Hann tók í hönd hennar. — Sérðu, sólin er að koma upp. Svona verður allt líf okkar, eilíf sól. Vilborg brosti. Hún vissi að Hafliði var draumóramaður, en hún elskaði hann. Hún var líka viss um að sólin skini á meðan þau væru saman. Þannig var lífið. Sigurður Óskarsson, Krossanesi Fljót er nóttin dag að deyfa, dinunan færist yfír geim. Undir Blesa skröltir skeifa; skyldi9 hún ekki tolla heim? Heima er bezt 143

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.