Heima er bezt - 01.09.1990, Blaðsíða 3
Út af þessari reynslu leggur Guð-
laug síðan í grein sinni og viðurkennir
fúslega, að þessi gamaldags kennslu-
aðferð, sem talin var úrelt, hefði
komið sér á óvart sem rétt leið í
kennslunni. Hún vekur athvgli á því,
að texti íslendingasagna láti einkar
vel í eyrum, enda var hefðin sú að
segja þær eða lesa upphátt í aldanna
rás. Síðan bætir hún við: „Evru
manna hafa lítið breyst, en ungling-
arnir nú til dags. sem komnir eru langt
frá sagnahefðinni, þurfa leiðahnoð til
að nálgast bókmenntaarfinn. Þessi
leið reyndist fær. Allir lásu, allir
heyrðu og allir voru með þegar
staldrað var við fleygar setningar sem
hugsanlega hefðu farið framhjá nem-
anda sem af skvldurækni þvældi sér
til að lesa nokkra kafla heima.“
Þessa athyglisverðu játningu kenn-
arans hefði enginn skilið fyrr á öld-
inni, því þá efuðust rnenn ekki um
gildi þeirrar aðferðar. sem hún strauk
rykið af og lét eftir sér að nota. Það er
ekki ofsögum sagt. að nýjungagirnin
hlaupi ósjaldan með okkur Islendinga
í gönur og ég hvgg að það eigi ekki síst
við á sviði menntamála.
Þetta sýnist ekki flókið, en ef til vill
er erfitt að kyngja þeim mistökum
virtra uppeldis- og kennslufræðinga.
að varpa fyrir róða hefðbundnum að-
ferðum, sem vel hafa dugað, m.a.
þeim, að kenna börnum og ungling-
um ljóð og láta þau lesa upphátt sem
lengst hvert fyrir annað. —
B. G.
Heima er bezt. Þjóðlegt heimilisrit. Stofnað árið 1951. Kemur út mánaðarlega. Útgefandi: Bókaforlag Odds Björnssonar.
Ritstjóri: Bolli Gústavsson í Laufási. Áhyrgðarmaður: Geir S. Björnsson. Heimilisfang: Tryggvabraut 18-20. pósthólf 558, 602 Akureyri.
Sími 96-22500. Áskriftargjald kr. 2.000,00. í Ameríku USD 30.00. Verð stakra hefta kr. 250,00. Prentverk Odds Björnssonar hf.
HEIMA ER
BEZT
9. tbl. 40. árg. SEPTEMBER 1990
Bolli Gústavsson í Laufási
„Lesa og skrifa list
er góð“ - Leiðari 270
Hjálmar Jónsson
Hann stökk um borð
með sængina og bíómiða
Viðtal við Kristján Helgason
skipstjóra á Sauðárkróki
Jakob Frímann Magnússon Sjónarmið 279
Sigríður Guðmundsdóttir Schiöth Leikstarfsemi í Grýtu- bakkahreppi árin 1922-1930 281
Erlendur Sigmundsson Tvö ljóð 283
Bolli Gústavsson í Laufási „Það að yrkja er þjóðar- gaman“ - Vísnaþáttur 284
Guðrún E. Jónsdóttir Leiðrétting 285
Sögulegar ljósmyndir XXXII 286
Guðrún E. Jónsdóttir Hrognin sótt 287
Bolli Gústavsson í Laufási Selárdalskirkja 288
Gísli Jónsson Um nöfn Strandamanna 1703-1845 Síðari hluti 289
Einar Haukur Eiríksson Bréf til Gísla Jónsonar 296
Forsíðumyndin er af togaranum Skagfirðingi
SK 4 á siglingu. — Ljósm.: Páll A. Pálsson.
Innfellda myndin er af Kristjáni Helgasyni,
skipstjóra á Sauðárkróki.
298
Bolli Gústavsson í Laufási
Bókahillan 302
Árni Davíðsson
Sjóferðaminningar
Arna Davíðssonar
1875-1878, fjórði hluti
Kristmundur Bjarnason
bjó til prentunar
Heima er bezt 271