Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1990, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.09.1990, Blaðsíða 11
Nýöld í Eyjafirði Norðlenskir verktakar og athafnamenn munu að líkindum vonsviknir og hrelldir yfir álversmálinu. Vonin um að loks hlypi nú á snærið hjá norðlenskum byggingafyrirtækjum hefur vafalaust frestað annars óhjákvæmilegum gjaldþrot- um og búferlaflutningum. Atgervisflóttinn til Reykjavík- ur heldur áfram þangað til fólk áttar sig á að vandamálin eru til staðar þar ekkert síður en annars staðar og það er í sjálfu sér engin gulltrygging fyrir hamingju og hagsæld að hlaupa í fangið á strákunum með stóru peningana handan fjallsins. Víst hefði það verið búhnykkur fyrir Eyfirðinga að fá álver einkum fyrstu 10-15 árin, meðan helstu framkvæmd- ir stæðu yfir. Hins vegar má einnig Iíta á það sem blessun að þessari blómlegustu og búsældarlegustu byggð landsins verður nú, enn um sinn a.m.k., hlíft við því óyndi sem óhjákvæmilega fylgir stóriðju af þessu tagi. Það eru nefni- lega að líkindum jafnmikil verðmæti fólgin í því þegar til lengri tíma er litið að halda svæðinu ómenguðu og útlitslega óspjölluðu. Slík svæði verða fágætari með hverju árinu og þarafleiðandi eftirsóttari af ferðamönnum sem og þeim sem sækjast eftir hollum og ómenguðum afurðum og ekki síst því fólki sem hreinlega kýs að búa fjarri stóriðjuskarkala og stressi. Ein af ástæðum þess að álversframkvæmdir við Eyja- fjörð frestast um óákveðinn tíma var rödd hins fámenna en háværa hóps sem setur ómengað loft og umhverfis- vernd ofar gróðasjónarmiðunum. Alversmógúlar nenna ekki að hlusta á slíkar raddir né að eiga yfir sér mótmæla- göngur og kröfuspjöld þegar þeir geta plantað sér fyrir austan eða sunnan án slíkrar hættu. Og einhverjir hefðu vafalaust tilhneigingu til að kalla umhverfisverndarhópinn fámenna í Eyjafirði bæði forpokaðan, þröngsýnan og gamaldags. Þannig vill nú hins vegar til að raddir slíkra hópa eignast sífellt betri hljómgrunn í löndum þar sem mengunarvaldandi stóriðja hefur verið stunduð að ein- hverju ráði. Og jafnhliða því hefur þegar tekið að gæta áhrifa hinnar svokölluðu nýaldar, jafnt hér sem annars staðar. Hvað er nýöld? Nýöld er þýðing á enska hugtakinu ,,New age“, en beggja vegna Atlantsála hefur hugmyndafræði nýaldar vaxið fylgi undanfarinn áratug. í heimspeki nýaldarinnar er að finna ný sjónarmið og nýjar viðmiðanir í sambandi við flest sem lýtur að lifnaðarháttum og velferð mannfélagsins. Sagt er að allt kalli á andstæðu sína og nýöldin táknar einmitt andhverfu hins háspennta lífsgæðakapphlaups nútíma samfélags. Nýaldarsinnar gera sér glögga grein fyrir því hvert stefnir í umhverfismálum plánetunnar og breyta í samræmi við það. Samhengið á milli sjúkdóma og mataræðis, streitu og hjónaskilnaða, umhverfis og langlífis eru dæmi um einfaldar uppgötvanir í anda nýald- ar, uppgötvanir sem kannski hafa legið ljósar fyrir lengi, en eru í seinni tíð að hafa sífellt meiri áhrif á daglegt líf og lifnaðarhætti fólks. Fleiri dæmi má nefna: Vinsældir hinna margvíslegu slökunarnámskeiða, ásókn í hvers kyns andlega iðkun, innan kirkju sem utan, breytt mataræði, einkum meðal ungs fólks og síðast en ekki síst stóraukinn áhugi á umhverfismálum. Allt eru þetta vísbendingar um hin nýju sjónarmið sem víðast hvar eru kennd við ,,New age“ eða nýöld. Eyjafjörður - tákn nýaldar á íslandi? í stað þess að sökkva sér í álversharminn er rétt að Eyfirð- ingar skoði sína stöðu í nýju Ijósi og einbeiti sér í bili að hinum fjölmörgu möguleikum og kostum því samfara að vera lausir við álversörtröðina og mengunina. Þó svo að suðvesturhornið muni smám saman hverfa í koltvísýringsmettaðan og eiturmengaðan stóriðjumökk er ljóst að margar þjóðir sem svipað er komið fyrir renna Jakob Frímann Magnússon fæddist í Kaupmannahöfn 4. maí 1953 sonur hjónanna Bryndísar Jakobsdóttur frá Ak- ureyri og Magnúsar Guðmundssonar frá Hvítárbakka í Borgarfirði. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1972, og stundaði jafnframt nám við Tónlist- arskólann í Reykjavík. Stundaði nám við H.í. 1975-77, og starfaði jafnframt sem blaðamaður á DV. Starfaði í Bretlandi og Bandaríkjunum við hljómplötu- og kvik- myndagerð og hefur framleitt fimm kvikmyndir, sjö hljómplötur undir eigin nafni auk allra hljómplatna hljómsveitarinnar Stuðmenn, sem hann stofnaði árið 1969 ásamt Valgeiri Guðjónssyni. Hefur starfrækt eigið hljóð- ver og auglýsingafyrirtæki undanfarin ár samhliða hljóm- leikafcrðum innan lands og utan. Sambýliskona Jakobs er Ragnhildur Gísladóttir söngkona og eiga þau dæturnar Bryndísi 3 ára og Ernu 13 ára. Heimaerbezt 279

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.