Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1990, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.09.1990, Blaðsíða 35
Bókahillan suðvesturodda Englands. Mikil töf varð þar vegna suðvestan storms á Biskajaflóa. sem hrakti þau til Brest á Bretónskaga um nýár og leiddi til vetursetu í Frakklandi. Því komust þau ekki fyrr en með vori til Portúgal, en þaðan lá leiðin suður með Afríkuströndum, um Kanarí- eyjar, Grænhöfðaeyjar til fátækrastórborgar- innar Dakar í Senegal, þar sem ekkert var auð- velt og að fljótinu Casamance, sem er skipgengt 40 sjómílur inn i land. Á vatnasvæði þess er matarkista Senegal, því þar er mesta græn- metis- og ávaxtarækt landsins. sem er annars hrjáð af vatnsskorti. Þangað upp sigldu Þor- björn og Unnur eftir vistum til langrar siglingar þvert yfir Atlantshafið. Þau hugðust sigla eftir 12. breiddarbaug til vesturs í 2600 sjómílur (þ.e. tæplega 5000 km), yfir til Grenada syðst í Karíbahafi: og það gerðu þau, lögðu af stað 15. febrúar og fundu fljótt staðvindinn af norð- austri, sem bar þau hratt yfir hafið. í fylgd með þeim var og Marteinn vinur þeirra frá Dan- mörku, „sem kom með til að vera með í að brúa Atlantshafið." Ég minntist á ljóðræna þætti í upphafi þessa máls og um þá er koman til Grenada ágætt dæmi: „Daginn sem von er á landsýn er allt vaðandi í fugli og feitar hnísur kollveltast af kátínu í kringum skipið. Uppúr nóni er sjónbaugurinn ekki lengur órofinn hringur. Litil þúst stingur kollinum uppúr honum, komin til að vera. Hún vex djörf úr hafi og verður eyja, fjarblá og kyrr. Þetta er eyjan Grenada — fast land eftir þrjár vikur í ólgandi hafi undir streymandi himni stað- vindsins. Þegar birtu bregður leggjum við til drifs yfir nóttina frekar en að hætta á innsiglingu með rifum og skerjum í myrkrinu. Eftir tuttugu daga í hafi liggur alltieinu ekkert á. Nú þegar tak- markið er í sjónmáli er óhætt að tappa af vara- tanki þolinmæðinnar. ekkert mál að bíða eina nótt og njóta landtökunnar í björtu. Daufur ljóshjálmur leggst yfir eyjuna með myrkrinu; bjarminn af bænum, og í landátt iða Ijós lítilla fiskibáta á næturveiðum líktog ný- lentar stjörnur að átta sig á innbyrðis afstöðu. Þrátt fyrir nálægðina er engin landlykt: við er- um vindmegin við eyjuna. Yfir nóttina lygnir og okkur rekur nær straumnum. I dögun gnæfir hún yfir sem dökkur þéttur massi, svo skerpast útlínurnar eftir því sem birtir. Hún grænkar smámsaman útúr möttum morgungráma. Hæg græn bvlting brýst útúr ofgnótt blámans undanfarnar vikur. Iðjagræn — ómunagræn birtist eyjan inni á milli gráhvítra skúraleiðinga — það virðast engin takmörk fyrir því hversu grænt grænt getur orðið. Eftir eyðimörk úthafsins er unun að sjá þennan aldingarð. Augun svelgja í sig grænkuna í litrænum næringarskorti líktog maður með skyrbjúg rífur I sig sítrónu. Ef heimurinn er ostra hlýtur þetta að vera perlan." Og ferðin heldur áfram eftir dvöl á Krvdd- eyjunni vestur um Karíbahaf meðfram norð- urströnd Suður-Ameríku og endar á karnivali í Panama. þar sem „sambatakturinn sameinar“: hann rennur sem blóð um æðar samstillts mannfjölda. „Til þess er karníval — til að eiga heiminn öll saman.“ Þau eru lokaorðin. Það er óhætt að mæla með þessari bók, því vel er til hennar vandað og engum þarf að leiðast, sem hana les. g q Heima er bezt 303

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.