Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.02.1993, Qupperneq 8
Herdís 27 ára gömul. uppi stóru fjölskylduheimili sem var sannkallaður hornsteinn i lífi okkar allra. AÐ ÞEKKJA UPPRUNA SINN Þó ég telji mig ekki vera ættfróða, né heldur hafa mikinn áhuga á ættfræði, tel ég hverjum manni hollt að þekkja ævi nánustu ættingja sinna. Hver veit nema slík vitneskja gefi manni einhvern skilning á sjálfum sér, á arfteknum kostum og göll- um og hvað betur mætti fara. Mér dettur oft í hug það sem Þorvaldur sonur minn, þá 14 ára, sagði eitt sinn þegar hjá okkur voru gestir sem höfðu mikinn áhuga á því hvaða þekkt fólk væri skylt hinum og þessum og af hvaða ætt: „Ég skil ekkert í fólki að vera að grobba sig af því að vera komið af hinum og þessum mikilmennunum, það er miklu betra að vera komin af hálfvitum, það sýnir þó að um ein- hverja framþróun sé að ræða.“ Bragð er að þá bamið finnur. BÆRINN í HRA UNINU Að flestra dómi hefur Hafnarfjörður eitt fegursta bæjarstæði á landinu. Byggðin liggur í skeifu umhverfis fjörðinn og snýr á móti vestri. I kringum hæðir, hamrar og velgróin hraun sem skýla fyrir vindum og þá sérstaklega norðanáttinni. Að koma til Reykjavíkur frá Hafnarfirði í norðanátt er eins og að koma til annars heims, svo mikil eru við- brigðin. Grjótholtin og berir melar í kringum höfuðborgina fundust mér kaldranaleg hér áður fyrr, á meðan ég átti heima í Hafnarfirði. Það hefur eflaust haft áhrif á tilfinningu mína fyrir gróðri að þegar ég var bam, eða til 7 ára aldurs, bjuggum við í húsi sem stóð fast við Hellisgerði, skrúðgarð bæjarins. Hellisgerði var þá þegar um 1930 orðið vel gróinn og fallegur garður og þangað áttum við krakkarnir oft erindi, til dæmis til að sækja rifsber handa vængbrotnum fugli sem við fóstruðum eða klifra í fallegu klettunum þar innan um alls konar skrautblóm. Oft geng ég um garðinn að sumarlagi, ef ég á erindi í Fjörðinn, og rifja upp gamlar minn- ingar um dýrlega sólskinsdaga þar eða atvik mér minnisstæð. Mér er til dæmis minnisstæður jarð- skjálftinn mikli árið 1929 en er hann kom var ég á leið inn í Hellisgerði þar sem mamma og systkini mín sátu í sólinni. Ég greip í girðinguna og hélt mér þar grátandi af hræðslu þar til fólkið kom þjó- tandi og hver hraðaði sér heim til sín til að athuga hvemig þar væri umhorfs. ÍÁLFABYGGÐ Pabbi keypti síðar hús við Brekkugötu 10 og þangað fluttum við. Brekkugata er gatan sem ligg- ur frá brúnni yfir bæjarlækinn og upp á hamarinn. Þar var útsýni yfir bæinn og höfnina. Við hliðina er hamarinn með sína kletta og blómabrekkur og þýft Hamarskotstúnið efst. Þetta var hið ákjósanlegasta leiksvæði sem hugsast gat. Oft vorkenndi ég mínum bömum að hafa ekkert annað en götuna og lóðina í kringum húsið til að leika sér á. Þess vegna var alltaf reynt að fá pláss fyrir þau í sveit á sumr- in, jafnvel eftir að við eignuðumst sumarbústað, því stálpaðir krakkar tolla ekki í sumarbústað, þau þurfa að hafa eitthvað fyrir stafni. 44 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.