Heima er bezt - 01.02.1993, Blaðsíða 9
Brúðkaup Herdísar og Gunnlaugs.
SUNDKENNSLA í SJÓ
Á Óseyri var á sumrin sundkennsla í sjónum og
var það mikið ævintýri þó sjórinn væri ekki nema 8
til 10 gráðu heitur. Oft var mikið skolfið í óupphit-
uðum skúr sem okkur var ætlaður til að klæðast úr
og í. Á kvöldin var farið í leiki þegar veðrið var
gott. Þá söfnuðust saman krakkar úr hverfinu og
lékum við okkur þar til kallað var á okkur inn til að
hátta um kl. 10. Oftast vorum við í feluleikjum,
fallin spýtan, köttur og mús, kapphlaupi, sippuleik
sem hét snúsnú, boltaleikjum svo eitthvað sé nefnt.
Mjög góðar skíðabrekkur voru í Setbergslandi rétt
ofan við bæinn og á læknum renndum við okkur á
skautum. Að eyða æsku og unglingsárunum við
slíkar aðstæður eru að mínu mati mikil forréttindi.
MYRKUR SKUGGIDAUÐANS
Einn stór skuggi grúfir yfir æskuminningum
mínum. Þegar ég var tæplega 9 ára veikist faðir
Á páskum 1955, með börn sín Hrafn, Þorvald,
Snœdísi og Tinnu.
minn skyndilega. Hann fékk botnlangakast,
botnlanginn sprakk og hann dó úr lífhimnubólgu
eftir misheppnaða skurðaðgerð. Faðir minn varð
okkur öllum mikill harmdauði, þarna var þessi
glæsilegi maður, 37 ára gamall, hrifinn vægðarlaust
á brott frá fjölskyldu og vinum, eigin framtíð og
framtíð okkar allra. Pabbi hafði svo ótrúlega margt
til brunns að bera, tók mikinn þátt í félagsmálum,
hafði fallega söngrödd og söng í Karlakórnum
Þröstum. Tónlistarhæfileikar hans voru miklir og
hann spilaði á öll hljóðfæri sem þá þekktust. Allir
bæjarbúar voru harmi slegnir við lát hans og okkur
fjölskyldunni varð hann óbætanlegur missir.
Mamma stóð nú eftir með okkur þrjár systumar og
barnshafandi að bróður mínum sem fæddist ekki
fyrr en 4 mánuðum eftir lát pabba. Ekkjur í þá daga
áttu ekki margra kosta völ, hvorki var um að ræða
tryggingar eða opinberan stuðning. Að vísu áttum
við góða að og ber þar fyrst að nefna fjölskyldu
mömmu. Þau bjuggu í stóru húsi í Reykjavík og
þar eyddum við mörgum helgum og öllum hátíðum
í góðu yfirlæti. Það sem þó bjargaði okkur fyrst og
fremst var, að mömmu tókst að fá góðan verslunar-
stjóra og halda búðinni með því þó að vinna tvö-
faldan vinnutíma sjálf, sjá um heimilið og afgreiða
í búðinni hálfan daginn.
Heima er bezt 45