Heima er bezt - 01.02.1993, Side 11
Skólasystur í blómaskálanum hjá Sigurlaugu
Arnórsdóttur í Hafnarfirði.
allt þegar herinn kom 1940. Þá skapaðist nægileg
atvinna og kaupgetan óx, auk þess sem hermenn-
imir versluðu töluvert, keyptu sér myndavélar, film-
ur, penna, bréfsefni, kort og fleira. Um þetta leyti
lauk ég námi mínu í Flensborgarskóla og langaði í
Verslunarskólann. Það þótti allt of mikið fyrirtæki
að sækja skóla til Reykjavíkur og ekki treysti
amma Halldóra sér til þess að bæta á sitt stóra heim-
ili. Það varð því úr að ég fór á ljósmyndastofu
Önnu Jónsdóttur, vann þar og lærði meðal annars
myndatökur og það sem kallað var redúseringu.
Tvemur árum síðar stofnaði móðir mín ásamt
verslunarstjóranum í bókabúðinni vefnaðarvöru-
verslun og var mér falið að sjá um hana. Það var
erfitt hlutskipti því á stríðsárunum var mikill
vöruskortur. Það var bókstaflega slegist um það
litla sem var innflutt og verslanir fengu úthlutað
skömmtunarseðlum á vörur sínar. Eins og viðbúið
var fengu stóru, gömlu og rótgrónu verslanirnar
stærsta skammtinn. Margar ferðir fór ég bónleið til
heildsala til að hafa eitthvað að selja. Þetta voru
ótrúlegir tímar, eftir allan stríðsgróðann var allur
gjaldeyrir horfinn á fáeinum árum, alls staðar
vöruskortur og margir muna eftir biðröðunum sem
mynduðust þar sem eitthvað var að fá.
LEIKLIS TARÁHU GINN KVIKNAR
Á meðan ég vann í búðinni fékk ég tækifæri til
að fara á leiklistarskóla Lárusar Pálssonar sem var
seinni hluta dags tvo daga í viku. Mamma hjálpaði
mér að losna úr búðinni. Áður var ég búin að vera í
Með saumaklúbbnum í sumarbústað. Taliðfrá
vinstri: Rut, Margrét, Herdís, Asta B., Asta M.,
Þorbjörg og Steinunn.
Sólskinsdagur í sumarbústaðnum við Helluvatn.
tímum í framsagnarlist hjá Haraldi Björnssyni.
Leiklistaráhugi minn kviknaði er ég 17 ára fékk
tækifæri til að vera með í óperettunni Frk.
Nitouche sem Tónlistafélagið og Leikfélag
Reykjavíkur settu upp í Iðnó. Mér þótti þetta svo
skemmtilegt að ég ákvað að læra eins mikið í leik-
list og kostur var. Það gerði ég, fyrst hjá Haraldi og
Lárusi eins og fyrr segir, og síðar sigldi ég utan til
náms í Royal Academy of Dramatic Art, einum
virtasta leiklistarskóla í heimi.
HJÓNABAND
Sumarið áður en ég fór utan giftist ég Gunnlaugi
Þórðarsyni sem þá var að ljúka lögfræðinámi.
Gunnlaugur ætlaði í framhaldsnám í Englandi en
bauðst starf forsetaritara og því starfi var ekki hægt
að hafna. Því fór svo að dvöl mín í Bretlandi varð
ekki eins löng og ætlað var. Þegar heim kom bauðst
Heimaerbezt 47