Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Síða 14

Heima er bezt - 01.02.1993, Síða 14
síðan að losa af bílnum og bera inn í húsin og upp á svið oft við erfiðar aðstæður. Því næst var gengið frá sviðinu, og ljósin stillt, og búningunum komið fyrir í köldum kompum. Þá var farið í mat ef tími vannst til og strax eftir sýningu þurfti að bera allt út aftur og pakka á bílinn og ganga frá og því næst var lagt af stað í bítið næsta morgun. Þegar komið var á Homafjörð eftir um það bil 3ja vikna ferðalag urðum við að keyra alla leiðina til baka því hringvegurinn var ekki kominn. En gleðin yfir því að geta skemmt fólki og auðvitað fengið smákaup um leið ef vel gekk, gerði það þess virði að leggja þetta á sig. ÓHAPP Á LEIKFERÐ Einu sinni vorum við að á leið til Grundarfjarðar og rétt áður en komið var í þorpið var blindhæð á veginum. Bílstjórinn sem var ungur maður var lík- lega feginn að komast á áfangastað og keyrði því nokkuð greitt. Efst á hæðinni var djúpt hvarf í veg- inum og bíllinn lenti illa í því, framhjólin snerust á ská og bíllinn tók á rás út af og niður brekku en hafnaði á hliðinni í læk fyrir neðan. Við urðum að klifra upp úr bíllnum til að komast út því hurðin sneri upp og mesta mildi að ekki kviknaði í því vélin gekk af fullum krafti. Við meiddumst lítið sem ekkert en bílstjórinn fékk sjokk og grét. Fljótlega kom bíll aðvífandi og keyrðu okkur í þor- pið þar sem gerðar voru ráðstafanir til að fá annan bíl sendan fyrir næsta dag og enn annan til að sækja dótið okkar. Síðan var hafist handa um að undirbúa sýninguna um kvöldið því að búið var að auglýsa hana í útvarpinu og því ekki aftur snúið. Þennan sama dag kom svolítið skemmtilegt atvik fyrir. Á meðan við vorum að undirbúa sýninguna komu 3 telpur í heimsókn. Þær höfðu meðferðis fullan dúnk af smákökum sem þær sögðu vera sendingu frá móður einnar þeirra. Við vorum næst- um hrærð yfir þessari hugulsemi og héldum að þetta væri gert af samúð vegna slyssins sem farið var að fréttast um þorpið. Eg sagði að við yrðum að stansa næsta morgun hjá þessari góðu konu og þakka fyrir okkur og það gerðum við. Þá kom í ljós að kökumar áttu að fara til útlendra sjálfboðaliða sem voru að hjálpa til við kirkjubyggingu á staðnum, en krökkunum hafði þótt skemmtilegra að koma til okkar og því fór sem fór. Á leikfer- ðunum hittum við oft margt ógleymanlegt fólk, gestrisið og skemmtileg. Slíkt er ómetanleg í min- ningunni. SJARMINN ALLT ANNAR EN VAR Eg hef farið nokkrar leikferðir með Þjóðleikhúsinu nú hin seinni ár og þeim ferðum er ekki hægt að líkja við þær fyrri. Sviðsmenn og ljósamenn sjá um sviðið og gist er á hótelum, ný og fullkomin samkomuhús hafa risið á flestum stöðum á landinu. Alls staðar er lúxus og flest dýrt eftir því. Eg hefði þó ekki viljað skipta á því sem nú er og ævintýralegum ferðum okkar enda ómetanleg reynsla ungum leikurum. BÖRNIN HIN SANNA AUÐLEGÐ Ekkert í lífinu jafnast á við bamalán og fyrir það er ég þakklátust af öllu. Engin gleði jafnast á við þá að eiga heilbrigð böm og geta fylgst með þroska þeirra. Ég sagði alltaf í gamla daga að ég ætlaði mér að eignast 4 börn, 2 af hvoru kyni, og það gekk eftir. Hrafn er elstur, fæddur 1948. Hann er nú stafandi kvikmyndagerðarmaður eins og flestir vita því hann hefur verið mikið í fjölmiðlum og ekki alltaf lognmolla í kringum hann. Næstur er Þor- valdur, ég er oft spurð: Áttu annan son... Þorvaldur er algjör andstæða Hrafns, hann fer sína leið í rólegheitum. Þorvaldur er stærðfræðingur og vann hjá Reiknistofu Háskólans en hefur starfað undan- farin ár við hvalarannsóknir og talningar með Jóhanni Sigurjónssyni líffræðingi. Þriðja bam mitt er Snædís, hún er lögfræðingur og vinnur á sýs- luskrifstofunni á Húsavík þar sem hún býr ásamt manni sínum, Sigurjóni Benediktssyni, sem er tannlæknir þar og 3 börnum þeirra. Elsta dóttir þeirra er orðin 19 ára, hún er í menntaskólanum í Reykjavík og býr hjá mér á vetuma. Yngsta bam okkar er Tinna, hana þekkja flestir af kvikmyndum, sjónvarpi og úr leikhúsinu. Hún er gift Agli Ólafs- syni söngvara, leikara og tónlistarmanni sem allir þekkja líka úr fjölmiðlum. Þau eiga 3 böm, Óla 15 ára, Gunnlaug 13 ára og Ellen Erlu 4 ára. Hrafn er 50 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.