Heima er bezt - 01.02.1993, Blaðsíða 15
Við söfnunarbauk fyrir trjárækt, semfélagið Lífog
land setti upp.
giftur Eddu Kristjánsdóttur , sem vinnur hjá
Sjónvarpinu og þau eiga 4 böm. Kristján er elstur
22 ára, þá Tinna 17 ára, Sól 11 ára, og Örk 6
mánaða. Kona Þorvaldar er Anna Jónsdóttir, hún er
fulltrúi í borgarráði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þau
eiga 4 böm, Herdísi 18 ára, Gunnlaugu 16 ára , Jón
15 ára og Hannes Þórð 11 ára. Böm Snædísar og
Sigurjóns eru Sylgja Dögg 19 ára, Harpa Fönn 11
ára og Benedikt 9 ára. Samtals eru bamabörnin 14
og mér finnst við vera einstaklega rík.
ÁHUGIÁ UMHVERFIS VERND
Ég er líklega fædd með græna putta, eins og það
er kallað. Alveg frá bamæsku hef ég verið að búa
mér til blómagarða og rækta tré hvar sem ég hef
búið. Sumarbústaðalandið okkar við Elliðavatn var
hektari lands með smámóum, melum og moldar-
flögum, ekki svo mikið sem ein hrísla fannst. Þama
byrjuðum við að gróðursetja fyrir 30 árum og nú er
þama skógur við vatnið og svo skýlt að í norðan-
næðingum er eins og annar heimur sé fyrir utan.
Þar höfum við átt marga sæludaga. Landið er alltaf
opið og öllum frjálst að skoða.
LÍF OG LAND
Formennskan í Félagi áhugamanna um umhver-
fismál, Líf og land hefur tekið mikinn tíma og
mikla vinnu. Meðal annars höfum við gefið út kort,
en fólk keypti þau og sendi alþingismönnum í
þúsunda tali. Á kortin var prentuð áskorun til þeir-
ra um aðgerðir sem dygðu gegn gróðureyðingunni.
Ég hef skrifað margar greinar og viðtöl í blöð og
tímarit um málið og kynnt það í ýmsum félögum,
meðal annars Lions- og Kiwanis-klúbbum. Við
áttum hugmynd að tillögu um friðun landnáms
Ingólfs Amarsonar fyrir lausagöngu búfjár og hún
kom til fyrstu umræðu fyrir jól. Hugmyndin er að
á þessu þéttbýlissvæði þar sem 2/3 hlutar lands-
manna búa en er þó ekki nema 1/20 hluti af land-
inu, væri hægt að græða upp eða láta sjálfgróa með
friðun. Við það fengist útivistar-svæði til yndis
öllum landsmönnum og til fyrir-myndar um
hvemig landið gæti litið út. Líf og land er líka að
gróðursetja tré og runna við Krýsuvíkur-skóla þar
sem unglingar eru í endurhæfingu vegna eiturlyf-
janeyslu.
UMHVERFISVERND
SEM LÍFSSTEFNA
Umhverfisvernd snertir veruleika okkar á
meðan við búum hér á jörðinni í stuttan tíma, því
að við höfum landið að láni á meðan. Okkar
mannlega reisn krefst þess að við skilum því til
barnanna okkar í betra en ekki verra ástandi en
þegar við tókum við því og stuðlum þannig að betri
framtíð þeim til handa í fallegu og þroskavænlegu
umhverfi. Þá höfum við gengið til góðs, götuna
fram eftir veg.
RÆKTUNARBÚSKAPUR
NAUÐSYNLEGUR
Við þurfum að taka upp ræktunarbúskap, eins
og svo margar aðrar þjóðir í heiminum. Þær hafa
sinn búsmala í girðingum þar sem hver tekur
ábyrgð á að hann valdi ekki skaða á gróðri eða
skapi hættu á þjóðvegum. Nú munu einhverjir
segja að það sé ekki allt að kenna búsmala hvemig
Heimaerbezt 51