Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Page 16

Heima er bezt - 01.02.1993, Page 16
komið er, heldur líka eldgosum og ótíð. Eldgos og ótíð hafa verið á öldum áður, áður en landið var numið en gróðurinn náði alltaf jafnvægi aftur eins og sést á því að landið var algróið við komu land- námsmanna og víða voru stórir skógar. Veður og vindar ná ekki að skemma þar sem landið er vel- gróið. Það er þegar beit og oft ofbeit veikir gróðurinn, sem sárin myndast og uppblástur hefst. Fyrst hverfa plöntur, og síðan fýkur moldin burt og eftir verður grjóturð sem þekur þetta land að stórum hluta. Dimmuborgir eru að hverfa í sand, stöðugt fýkur í Odáðahraun og Mývatnssveitin ásamt mörgu öðru gróðurlendi er í hættu vegna sandfoks. Það hljóta allir góðir menn að sjá að við verðum að hætta lausabeit búfjár, sem sagt byrja á byrjuninni, og taka síðan höndum saman í bróðerni og breyta þessu landi aftur í landkostaland. Það sem ég segi hérna hef ég eftir okkar vitrustu og bestu ættjarðarvinum. Ég gæti vitnað í fyrsta sand- græðslustjórann okkar, Gunnlaug Kristmundsson, sem sveið í hjartað að sjá eyðilegginguna, Ingva Þorsteinsson, Sigurð Þórarinsson jarðfræðing, Svein Runólfsson og föður hans Runólf Sveinsson sem sagði í útvarpserindi 1947: „Sauðfjárrækt okkar þyrfti að breytast og vera rekin sem ræktun- arbúskapur en ekki sem rányrkja og hálfgerður hirðingjabúskapur og sauðfé þyrfti að hafa í girðin- gu og að mestu leyti á ræktuðu Iandi.” 50 ár, hálf öld, er liðin síðan þessi orð voru sögð af þáverandi landgræðslustjóra en fáir hlustuðu og ekkert verið aðgert, heldur fé fjölgað svo að á árunum fyrir 1980 var fénaður á beit nærri 2 milljónir og þá var á flestum stöðum ofbeit og ekki að spyrja að afleiðingunum. Ég veit að allt gott fólk í landinu vill vinna með landgræðslufólki að því að gera þetta land fagurt og frítt eins og það var, allt sem þarf er viljinn. SKULDADAGAR Spumingin er hvaða framtíð bíður ungs fólks á þessari jörð á næstu öld. Tekst okkur að bjarga okkur út úr þeim skelfilegu ógöngum sem við höfum ganað út í af skammsýni og græðgi eða mun jörðin hrista okkur af sér eins og hverja aðra óværu sem búin er að særa hana næstum því til ólífis? Við hér á íslandi höldum að við séum til fyrirmyndar, öðrum til eftirbreytni. Þvílík blindni. Staðreyndin er sú að við höfum farið svo illa með landið okkar að fræðimenn segja að það þurfi að fara alla leið til Norður-Afríku til samjafnaðar. Við vitum öll að lífið var erfitt á öldum áður og að skóga þurfti að höggva og rífa í eldivið og næstum allir urðu að lifa af gróðri landsins alveg upp til efstu heiða og afdala því landið var svo þéttsetið á meðan hér var einungis bændasamfélag. Það hlaut eitthvað undan að láta með svo viðkvæmt gróðurlendi, enda ekki nema 1/3 eftir af gróðuþekju landsins. Er ekki komin tími til að stöðva eyðilegginguna þó það kosti átak, enginn býr á örfoka landi. Landgræðslan rembist við að sá og bera á fyrir milljarða, en hefur hvergi undan, sárin stækka stöðugt. Frá því að ég fór að kynna mér þessi mál, hef ég satt að segja orðið skelfingu lostin yfir ástandinu. Á hverju ári sem líður missum við þúsundir hektara af gróðri og gróðurmold. Getur það verið að við viljum ekki öll sem búum í þessu landi snúa bökum saman og taka á vandanum, en ekki fljóta sofandi að feigðarósi. ANDLEG MÁLEFNI Annað áhugamál sem hefur alltaf blundað með mér er að reyna að kanna okkar andlega veruleika. Til hvers erum við hér, hvaðan komum við og hvert við förum. Eftir því sem ég hef hugsað meira um þessi mál og lesið mér til finnst mér kenningar dulspekinnar þær sennilegustu og eina svarið við óréttlætinu sem viðgengst í heiminum. Við komum frá Guði og erum á leiðinni til hans aftur, en það er löng leið og mörgum erfið því við erum alltaf að gera mistök. Flest stafa þau af eigingimi því við höfum ekki ennþá skilið að við erum öll eitt og örlög hvers okkar snerta alla heildina, af því að við erum öll börn sama föðurins. Þessa lexíu þurfum við að læra í ótal jarðvistum, eins og skóla- bekkjum, og losnum ekki út úr hringrásinni fyrr en við erum búin að ljúka lokaprófinu. Allt er þetta undir okkur sjálfum komið, við sköpum þau skil- yrði sem við búum við hverju sinni, eftir því hvað við eigum að læra í lífinu og hvaða reynslu við komum með frá fyrri æviskeiðum. Okkur til aðs- 52 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.