Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.02.1993, Blaðsíða 18
ANDRÉS ÁRNI PÁLSSON: SÖNG MIGINN í SUMARDAGINN Jón Gísli Högnason skráði III. hluti í 777 erlingardalur er umlukinn fjöllum ^^f/nallt að 300 metrum að hæð, nema til ^7 C-X suðvesturs þar sem Kerlingardalsá rennur vestan Keldukamba eftir aurum til sjávar, milli Höfðabrekkuháls og Fagradalsfjalls, Fagradalsheiðar og vestan hennar er Víkurheiðin. Brynjusteinn hér utan Kerlingardalsár gegnir því hlutverki að vera landamerki milli Fagradals og Kerlingardals en um leið eins konar hommark milli Höfðabrekku og Kerlingardals. Það miðast við vörðuna en ekki aurinn. Landamerki hinna síðamefndu jarða fylgja hábrún sunnan við dalinn. Og ömefni Kerlingardals innan þeirra marka, dal- brúna, eru þessi sunnan dalsins: Aurnaból, Sverslugil, Skjappir, brekkumar sunn-an við túnið. Langhilla, Langagil, Stekkjartún, Sveinsgróf, Presthóll, Presthólsgil, Tíðagil, Klettabrekka, Klyf, Klyfgata, Skjappagil, hér sunnan við túnið. Austan dalsins: Smærnatungur, upp af brúninni eru Tjaldabúðir. Þá Gilið, Melkinn og aurgata, þar sem vegurinn liggur inn til heiðar-innar. Dagteigshraun, Alviðrugil, Dagteigur er beint upp af bænum. Skollasker þar sem brúnin er hæst, Austur-Alviðra og Vestur-Alviðra, Einars-haugur, Hólar, Hólalág. Er þá hringferð lokið umhverfis dalinn. Syðst í túni: Suðumes, Syðstutraðir, Miðtraðir, Traðakjaft- ur, gömul heimreið, er sagnir fylgja. Norðurnes, Stekkjartún, Hvilft, Neðrihvilft, Efrihvilft. Fyrir ofan Stígaskarð er Fremri- og Innristígur og er þá komið upp fyrir brúnir þeirra fjalla sem umlykja Kerlingardal. Milli Kerlingardalsár og Múlakvíslar liggja heima- og afréttarlönd Kerlingardals og Höfðabrekku. Heimalöndum skipt allt inn til Afréttisár, sem rennur á milli heima- og afréttar- landa, til tveggja átta, austurs og vestur, sem mun sjaldgæft hér á landi. Vatnaskil eru nær miðju árinn- ar. Um þessi fjöll fór ég ungur að kjaga, því ég var ekki nema tveggja ára þegar ég var látinn fara með matarfærslumanni austur í Kaplagarða, en svo heitir austan í Höfðabrekkuhálsi. Björgvin Vigfússon sýslumaður var þá að láta gera þar upp vagnfæra braut, áður höfðu þar verið troðnings- götur. Þetta var fyrsta verk Björgvins á Höfða- brekku, að láta gera þama braut frá Múlakvísl, upp þessa Kaplagarða og heim að bæ. Við þessa vega- gerð unnu Kerlingadalsbændur og fleiri. Þessi vegur kom að miklum notum, eins og við flutning á rekaviði, og var ekki verri en svo að hestvögnum var beitt þar upp, eftir mörgum beygjum, sem enn sér fyrir. Gömlu ferðamannagötumar voru austan Háfells og beint strik þaðan að Hafursey. Þar var allra leið þegar ég var ungur. 54 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.