Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Qupperneq 21

Heima er bezt - 01.02.1993, Qupperneq 21
Eftir hálftíma eða svo var bankað á dyr. Þá er kominn pólskur maður og kona með honum, sem spurði hvort það væri nokkur leið að þau fengju að gista um nóttina. Þegar maðurinn gekk inn gól- fið kom akkúrat sama hljóð og við höfðum heyrt áður um kvöldið. En maðurinn var á járnuðum klossum. Hljóðið var þó nokkuð lægra en það sem við heyrðum á þakinu, en þá hefur maðurinn verið staddur upp á Heiði. Hann hefur viljað halda okkur vakandi og þessu getur enginn neitað. Ég tel að stundum hafi ég orðið var við hugsanaflutning. Eitt sinn ætlaði ég að fara inn og tala í síma við einhvern en þá hringdi sá hinn sami til mín þegar ég var á leiðinni að símanum. Hann varð þá á undan mér. Ég get nefnt dæmi um þetta. Þá ætlaði ég að tala við mann úti í Reynishverfi, Gísla Skaftason á Lækjarbakka, en kallaður Gísli á Læk. Ég ætlaði að tala við hann um kindur og afréttarferðir. Þá varð Gísli fljótari í símann og talaði við mig. Síðast í vor, 1982, var ég hér uppi á túni, kominn „sjálfvirkur“ sími, bærinn á sérlínu, línan í jörð og ekkert við staurana að gera. Þá segi ég við sonarsyni mína, Karl og Andrés og Pálma son min: „Ég held ég fari inn og tali við hann Sissa,“ sem var kallaður svo, en heitir Sigþór Sigurðsson, og hefur með símann að gera. Ég ætlaði að hringja á hann og vita um hvort hann vildi ekki láta mig hafa staurana, svo þeir yrðu fjarlægðir úr túninu. Mér var alltaf illa við þessa staura, ekki síst þegar ég var að slá með sláttuvél. En svo varð einhvem veginn ekki af því að ég færi í símann. En hvað gerist morguninn eftir? Heyrði að það er kominn maður og er í hrókaræðum við Guðrúnu Amadótt- ur, tengdadóttur mína, og var þá kominn sami maðurinn og ég hafði ætlað að tala við daginn áður. Hann var ekki í neinum símaerindum en í prívatdrossíu. Nú hugsaði ég ekki svo stíft til hans út af staurunum að mér fannst en hann gat hafa orðið þess var. Þessu er ekki hægt að neita. Niðurlag í næsta blaði Marta S. Jónasdóttir: AÐ RIFA VANGA kki er víst að allt yngra fólk í dag hvernig farið er að því að rífa þorskhaussvanga. Þess vegna ætla ég að setja hér á blað stutta lýsingu á því.Fyrst er losað um kjaftbeinið með hníf og það rifið af. Svo er losað um krummabeinið og það einnig rifið af. Og vitanlega er jafnóðum etinn kýr- og krummafiskur. Þá er næst að rífa roðið af og skafa það og eta. Þá er að ráðast á koddafiskinn og bógfiskinn. Síðan að fletta af kerlingarsvuntunni og sleikja hana og ef hún stendur upprétt spáir hún þurrki en ef hún lyppast niður, spáir hún vætu. Þá er bara eftir að ráðast á kinnfiskinn og skera lygabarðið af, því ekki mátti eta það. Heimaerbezt 57

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.