Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Page 24

Heima er bezt - 01.02.1993, Page 24
Þegar ríkir náköld nótt, nötra björk og hlynur, þá er gott að geta sótt gleði til þín, vinur. Söm er alltafSollu gerð, sína götu brunar, komin er áfullaferð fyrr en nokkurn grunar. Allir kosti Esju dá, - enginn henni líkur, - dýrðarfögur, draumablá drottning Reykjavíkur. í síðasta þætti birtum við vísur eftir Óskar Þórðarson frá Haga, sem lesendur Heima er bezt kannast vel við af skrifum hans í blaðið. Við eigum fleiri vísur eftir Óskar í fórum okkar og þar á meðal þessar: Staka: Bjartsýnin, sem beturfer bendir á veg að rata. Meðan samstillt átak er eygist von um bata. Vísa trésmiðsins: Drjúg og sterk er höndin hög hcefni að verki lagði drög. s A birki og lerki beitti sög bera merkin gluggi ogfög. Von: Jafnan þegar erfitt er œ er von að linni. Hvað sem þér að höndum ber hafðu það í minni. Afurð vísinda: Mjög erframtíð mannkyns svört mœðir jafnt á konum. Sæðisfrumum fækkar ört fylgir deyfð hjá ,,honum.” Látum við þetta nægja að sinni og færum þeim, er okkur senda vísur, bestu þakkir: Að hér senda öðlingar yndis kveðskap snjallan, kærir þessir kviðlingar kæta hugann allan. Áskorun: Gaman væri að taka upp lið í vísnaþættinum sem við gætum t.d. kallað „áskorun,“ þar sem einstakir vísnahöfundar þáttarins gætu skorað á aðra þátttak- endur hans til andsvara. Langar mig því að hefja þann hugsanlega lið þáttarins á áskorun til okkar ágæta Óskars Þórðarsonar í tilefni af síðustu vísu hans í þessum þætti, þá er hann nefnir „Afurð vísinda:“ Ertu þarna Óskar kær ótta’ að lýsa’ í muna? Myndi ekki yngismær auka framleiðsluna ? Og skora ég nú á Óskar að svara þessari spurningu í vísuformi. Þykist ég reyndar vita að honum muni nú tæplega verða skotaskuld úr því verkefni. Birtum við þá ekki fleiri vísur að sinni. Heimilisfang okkar er: Heima er bezt, Pósthólf 8427, 128 Reykjavík. 60 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.