Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.02.1993, Qupperneq 25
Gissur Ó. Erlingsson: HARMSAGA FRA HERNÁM S ÁRUKI Ui^^rtir að þýski herinn hafði flætt yfir X^ÁDanmörku og Noreg með furðulegum hraða eftir innrásina 9. apríl 1940 gat ekki hjá því farið að mörgum manninum í fásinninu hér norður í Dumbshafi þætti nærri sér höggvið og kenndi geigs um það, að þó að landið væri Ægi girt og yst á Ránarslóðum, þá væri því ekki nú sú vöm / að einangruninni og dýpt Islands ála sem löngum hafði áður þótt. Fannst nú mörgum sem lítt mundi stoða yfirlýsingin frá 1918 um „ævarandi hlut- leysi,“ og hending kynni að ráða hvor stríðsaðila yrði fyrri til að kveðja hér dyra og setjast í bú með okkur án þess að hirða um að beiðast gistingar fyrst. Raunar sýndu Bretar okkur þá kurteisi að biðja um leyfi til hersetu hér og bar það upp á sama daginn sem Þjóðverjar gengu óboðnir inn í Danmörku. Auðvitað var Bretum synjað greiðans með skírskotun til fyrmefndrar hlutleysisyfirlýsing- ar. Engu að síður tel ég að þrátt fyrir þykkju og þun- gan hug í garð hinna óboðnu gesta hafi mörgum létt er í ljós kom að það voru breskar flugvélar en ekki þýskar, sem rufu næturkyrrðina aðfaranótt hins 10. maí 1940 og að það voru bresk herskip en ekki þýsk sem ösluðu inn Faxaflóa þennan vor- bjarta morgun. Um fótaferðartíma var margt hermanna komið á land á uppfyllingunni fyrir framan Hafnarhúsið. Við Landsímahúsið var breskur vörður með al- væpni, útihurð brotin og óbreyttum borgumm bægt þar frá dyrum. Var þar í miðbænum ys og þys af umstangi stríðskappanna er vom önnum kafnir að koma sér fyrir, stilla upp byssum og hertaka her- naðarlega mikilvæga staði, svo sem síma og útvarp og aðsetursstaði „óvinveittra afla.“ Niður við höfn var allt á tjá og tundri. Við Sprengisand lá stríðsdreki og ældi upp úr sér ógrynnum hermanna, gráum fyrir járnum. Einnig komu þar upp kassar sem ætla mátti að geymdu vistir og hergögn. Yfir öllu stóðu verðir og gættu þess að landslýðurinn hnýstist ekki í það sem leynt átti að fara. Unglingur úr hópi innfæddra mundaði ljósmyndavél og smellti af. Að honum vék sér, æði snúðugt, borðalagður stríðsmaður, hrifsaði vélina og reif úr henni filmuna. Þó að hinn áhugasami myndasmiður hafi ef til vill ekki skilið orðin, var merking athafnarinnar ótvíræð. Islensk fiskiskip höfðu verið tekin traustataki og stóðu þau nú í liðs- flutningum úr skipum á ytri höfninni sem töldust of stór til að leggja sjálf að bryggju. A horni gamla hafnarbakkans norpaði þyrping hnípinna manna undir hvössu og árvökru augnaráði víga-legra dáta með brugðnar byssur. Var hér komin áhöfn af þýsku skipi, Bahia Blanca, ekki borubrött nú eins og þegar hún spígsporaði með derringi um stræti höfuðborgarinnar. í þessum hópi var einnig þýski ræðismaðurinn, dr. W. Gerlach og starfslið hans, svo og slangur af Þjóðverjum sem hér höfðu dvalið og Bretar haft njósnir af. Heima er bezt 61

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.