Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Page 26

Heima er bezt - 01.02.1993, Page 26
Bahia Blanca hafði dagað upp í Brasilíu árið áður við upphaf styrjaldarinnar. Nú skyldi reynt að laumast heim eftir krókaleiðum, í skjóli vetrarmyrkurs eftir að á norðlægar slóðir væri komið, norðan Islands yfir til Noregs og þaðan innanskerja suður til Þýskalands. Tókst þá ekki betur til en svo að skipið braut í ísnum en íslenskur togari bjargaði skipbrotsmönnunum, um sextíu talsins, og flutti til Reykjavíkur. Voru þeir vistaðir á Hótel Heklu og víst víðar, og gerðust brátt uppivöðslusamir, svo að íslensk yfirvöld töldu sig knúin til að hafa hemil á ferðum þeirra, einkum á kvöldin og næturnar. Um þetta leyti hafði þýski sendiherrann orðið uppvís að því að hafa og nota til dulmálssendinga radíotæki í bústað sínum við Túngötu, auðvitað í leyfisleysi og banni. Síðar vit- naðist að lögreglustjórinn í Reykjavík, sem þá var Agnar Kofoed-Hansen, hefði verið kominn á frem- sta hlunn með að taka hús á sendiherranum og stöðva með valdi þetta ósvífna athæfi. Til þess kom ekki, enda varð breski herinn fyrri til. Enginn fann hann þó senditækin. Þau fundust ekki fyrr en að stríði loknu og þá í rusli í kompu uppi í rjáfri, að mig minnir. Nú var allt þetta fólk herfangar og átti fyrir hön- dum dauflega vist í óvinalandi. Við, forvitnir áhorf- endur, vissum ekki hvað fyrir okkur lá, en óljós geigur fyllti hugina. Að fótum mínum barst kvolaður blaðsnepill. Var þar komið eitt eintak þess dreifibréfs sem í aftureldingu hafði svifið til jarðar og firra átti lýðinn ótímabærum ótta: „Okkur pykir leidinlegt ad gera petta onaedi.“ Svo mikill hafði asinn verið að ekki hafði gefist tóm til að afla ritvélar sem á mátti rita íslenskt mál óbrenglað. Eftir umstang og geðshræringar hemámsdagsins komst furðufljótt jafnvægi á hugi alls þorra manna. Herliðið dreifðist til nálægra byggðalaga og her- mannatjöld spruttu upp um borg og bý eins og gorkúlur á hesthúshaug. Þó leið ekki á löngu að „nissen huts,“ hermannabraggamir frægu, kæmu í þeirra stað. Áttu þeir eftir að standa flestum til skammar og skapraunar áratugum saman eftir að hermenn voru úr þeim fluttir, bæði í Reykjavík og víðs vegar annars staðar um landið. „Bretavinnan“ vinsæla upphófst og með henni meiri eftirspurn eftir vinnuafli en framboðinu svaraði, enda jukust kaupkröfur verkafólks fram úr því sem atvinnurekendur töldu sig geta borið. Þótti nú ríkisstjórninni svo illa horfa um hag atvinnu- veganna vegna ótímabærrar heimtufrekju erfiðis- lýðs, að reisa yrði við skorður og setti þak á launa- greiðslur. Þessu svöruðu verkamenn með skæruh- ernaðinum svonefnda og allt rann þetta út í sandinn. Voru þessir atburðir af ýmsum taldir marka upphaf verðbólgunnar sem blómgast hefur og blásið sundur allt fram á þennan dag. Upphófst nú gullöld og gleðitíð meðal lét- túðarkvenna og æðimargra sem ekki höfðu verið taldar fylla þann flokk. Danshús hermannanna löðuðu og það var „draumur að vera með dáta.“ Mikil röskun varð á högum og háttum fjölda manns, stríðsgróðahugarfar festi rætur, margt gekk úr skorðum og yfirvöld þurftu ósjaldan að birta auglýsingar um hitt og þetta „vegna ástands þess sem nú ríkir,“ eins og það var orðað. Af því leiddi að „ástand“ varð kenninafn hersetunnar og allt annars konar ástand hvarf í skuggann. Stúlkur lentu í „ástandinu“ og urðu „ástandsmeyjar," menn voru í vinnu hjá „ástandinu,“ margir sem aldrei höfðu haft til hnífs og skeiðar höfðu nú nóg fyrir sig að leggja og sagt var að sumir þeir sem komust í „ástandsvinnu“ hefðu í henni lært að taka kaup án þess að vinna, gott ef ekki samtímis á fleiri stað en einum. Margir þeirra bresku hermanna sem til Islands voru sendir höfðu áður gegnt herþjónustu á megin- landi Evrópu, tekið þar þátt í bardögum og lent í hinu sögulega, mannskæða undanhaldi bandamannaherja fyrir sókn Þjóðverja gegnum Holland, Belgíu og Frakkland, sem lauk með flutningi leifa breka hersins yfir Ermarsund. Þrátt fyrir ungan aldur flestra þessara manna voru þeir þó hertir í orrustum og mannvígum og höfðu séð félaga sína fellda í hrönnum allt í kringum sig. Á þessum döpru dögum fóru Þjóðverjar eins og sinueldur suður allt Frakkland og höfðu safnað saman á Ermar- sundsströndum skipakosti sem flutt hefði getað óvígan her yfir til Englands. Það var því her í sárum og illa búinn vopnum, 62 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.