Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Qupperneq 30

Heima er bezt - 01.02.1993, Qupperneq 30
Rögnvaldur Erlingsson frá Víðivöllum: Orlaganótt á öræfum 9. hluti / er með þeim fyrstu sem koma á skemmt- Xp~sunina. Tveir stórir lögregluþjónar standa við dymar. Ég þekki þá báða. Annar þeirra var með mér í íþróttum, hann var kastari. Þeir brosa báðir til mín þegar þeir sjá rnig og segja: „Þú ætlar bara að reyna að velja úr konu svona snemma. Urvalið er nú lítið ennþá.“ „Búist þið við óspektum?“ segir ég og glotti. „Við vonum ekki. Annars er aldrei að vita hvað getur komið fyrir. Það liggur ókunnugur bátur við bryggjuna og mér er sagt að það fari illt orð af bátsverjum. Svo hleypir þú kannski öllu í bál og brand,“ segir gamli íþróttafélagi minn, „eins og í Skjólbrekku.“ Þá kom þér það nú betur, kunningi, að Knútur vinur þinn var viðstaddur." En lögreglu- þjóninn hafði verið farþegi í sama bíl og ég og því horft hlutlaust á. Hann hafði ekki komið mér til hjálpar þótt við værum gamlir félagar. „Mér skilst að það sé sami maður í bátnum og sá sem þú barðist við fyrir norðan“ bætir hann við og klappar á öxlina á mér. „Þú hjálpar mér nú líklega ef ég lendi í vand- ræðum. Varla lætur þú Skugga misþyrma mér,“ segi ég glaðlega og geng inn í húsið. Það eru fáir komnir, og ég þekki engan. Þetta er nýlegt samkomuhús, raunar byggt sem kvikmynda- hús með upphækkuðum sætum í öðrum endanum. Ég fæ mér borð þar sem lítið ber á mér, og kaupi mér öl að drekka. Nú fer fólkið að koma, en enginn er sestur niður hjá mér. Mér finnst eins og fólkið forðist mig, en það er kannski aðeins ímyndun mín. Ég þekki þó nokkra sem komnir eru, en enginn virðist þó vilja ræða við mig. Ég sé að Gréta kemur inn og með henni er tilvonandi mágkona hennar. Gréta lítur leiftursnöggt til mín, brosir, en sest svo við borð langt frá. Ég fagna því. Af einhverjum óskýranlegum ástæðum vil ég síður að Gréta sitji við borðið hjá mér. Ef Skuggi og Eva koma, veit ég að mér mun finnast það verra að hafa Grétu hjá mér. Strákamir í hljómsveitinni eru að koma sér fyrir og stilla gítarana. Það fór meiri tími í það en fyrir mig að spenna á mig harmoníkuna á böllunum heima þegar ég var að reyna að halda uppi fjöri í dansi, en oft hafði það tekist furðanlega vel. En á þeim árum höfðu menn látið sér nægja ófullkomna músík og skemmtu sér ótrúlega vel. Kannski jafn- vel betur en nú. Ég hrekk svolítið við þegar ég sé Skugga birtast í dyrunum. Mér sýnist hann vera hærri og þreknari 66 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.