Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.1993, Síða 31

Heima er bezt - 01.02.1993, Síða 31
en þegar ég sá hann síðast, en kannski var það bara af því að ég var drukkinn þegar ég sá hann og hefur þá kannski missýnst, en nú er ég allsgáður og hræddur. Eva kemur inn nokkru síðar, og með henni eru tveir bátsfélagar. Hún lítur leiftursnöggt til mín, en lætur sem hún þekki mig ekki, ég sé þó að það er kvíðasvipur í andliti hennar. Músíkin hefst og þau setjast öll fjögur saman við borð langt frá mér. Eva velur sætin. Hún óskar auðsjáanlega eftir því að vera sem lengst í burtu frá mér. Kannski er það okkur báðum fyrir bestu að láta sem við þekkjumst ekkert. En mér finnst það ekki auðvelt. Ég get ekki annað en horft á Evu, hve mikið sem ég reyni að gera það ekki. Ég þykist vita að Skuggi hljóti að taka eftir því, en það varð að hafa það. Ég er hér frjáls maður. Dansinn hefst. Ég sit þarna einn eins og illa gerður hlutur og hreyfi mig ekki. Ég dansa ekki. Ekki einu sinni þó að tvær snotrar stúlkur biðji mig um dans. Þær eru að vísu ofurlítið undir áhrifum áfengis, en einhvern tímann hefði ég ekki slegið hendinni á móti góðum félagsskap fagurra stúlkna. En ég er það utangátta að ég er hættur að skilja sjálfan mig. Tíminn líður, og ég sit þarna hljóður rétt eins og jarðfastur steinn, með hendur í skauti og hreyfi mig ekki. Ég stari bara og stari fram á gólfið þar sem þau dansa, Skuggi og Eva. Dansgólfið er þétt- skipað af fólki. Það er fjör í dansinum og Skuggi og Eva dansa alltaf saman. í hvert sinn sem hann þrýstir henni að sér og reynir að nálgast hana, lít ég undan. Ég kreisti þess í stað borðplötuna. Þetta er að verða mér óbærileg kvöl að vera hér. Ég verð að hreyfa mig eitthvað. Ég sé að Skuggi er orðinn drukkinn og hann er farinn að gerast áleitinn við Evu, og jafnan lítur hann um leið til mín og glottir lymskulega. Hann þekkir mig auðsjáanlega, en hann getur ekki vitað um okkur Evu, eða hefur hún kannski sagt honum frá því. Er það ef til vill sjálfs- blekking. Hún virðist vera hér hrædd og nauðug. Sér það kannski enginn nema ég. Hvers vegna sit ég hérna einn og yfirgefinn? Hér er alls staðar dansfélaga að fá. Rétt hjá mér sat Gréta og dansaði lítið eins og ég, en fylgdist af þeim mun meiri áhuga með dansfólkinu á gólfinu. Nei, ég verð annaðhvort að hverfa burt eða varpa mér í sollinn og reyna að njóta líðandi stundar, svo að ég geng til Grétu og býð henni upp í dans. Hún rís hægt á fætur og hvíslar í eyra mér: „Heldurðu að það sé rétt að við dönsum saman?“ „Viltu ekki dansa við mig?“ spyr ég. „Kjáni, þú þarft varla að spyrja þess, en er það rétt af okkur að dansa saman?“ „Einn dans ætti engu að breyta.“ „Nei, ef til vill ekki,“ segir Gréta og kemur í faðm minn. „Ég er búin að sjá fjallafáluna þína hér í kvöld. Aumingja þú. Ég er viss um að hún er ekki ánægð hér. Hún er hrædd. I hvert sinn sem Skuggi reynir að þrýsta henni að sér, bregður fyrir ótta í tilliti hennar og svip. Svo mikið þekki ég það, Adam,“ segir Gréta. „Hvað á ég að gera, Gréta?“ / „Þú hvorki mátt né getur gert neitt. Eg held að hún óttist þig meira en Skugga.“ „Er ég þá svona mikill...?“ „Rólegur vinur, ég er þess fullviss að hún er hrædd.“ „Gréta,“ hvísla ég að henni. „Eva veit hvar ég var í nótt.“ Gréta hrekkur við og spyr óðamála: „Hvernig veistu það?“ „Vertu róleg, vinan. Eva segir engum frá því. Hún er engin kjaftaskjóða. Hún kom til mín í dag og bað mig um að koma ekki hér í kvöld.“ Gréta dansar hljóð langa stund og stundum finn ég fyrir þrá hennar. Loks spyr hún lágt: „Hvers vegna gerðir þú ekki eins og hún bað þig um?“ „Ég gat það ekki. En hún bað mig um annað. Hún bað mig um að vera ódrukkinn ef ég kæmi hér í kvöld.“ „Hún hefur ekki búist við að það þýddi að fara fram á að þú kæmir ekki hér í kvöld. Er það þess vegna sem þú ert ódrukkinn.“ „Já, og ég er ákveðinn í að vera þannig í nótt. Hennar vegna.“ „Ef til vill er það þinn sigur, hver veit,“ segir Gréta. „En mér finnst loftið hér lævi blandið. Ég óttast að allt geti gerst. Mér hefur sýnst ég lesa úr svip Skugga þegar hann lítur til þín hatur og grimmd. Heimaerbezt 67

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.