Heima er bezt


Heima er bezt - 01.01.1997, Qupperneq 19

Heima er bezt - 01.01.1997, Qupperneq 19
- Fórst þú svo ekki í héraðsskóla, þegar barnanámi var lokið, eins og flestir unglingar gerðu á þessum árum? - Jú, ég var í héraðsskólanum í Reykjanesi við Djúp. Þar var bama- skóli, íþróttaskóli, heitt vatn og sund- laug. Þama var ég einnig tvö sólrík sumur. Reykjanes hefur sjarma. Mað- ur á aldrei að reyna að skilja sjarma. Það er höfúðglæpur að gera ekki greinarmun á honum og reiknings- dæmi. í Reykjanesi var mín Mallorka, mín Costa del Sol. - Og svo hefur hugur þinn staðið til ffekara náms? - Ég fór i Kennaraskólann og út- skrifaðist þaðan 1941. Það var góður skóli. Ég klappa honum alltaf á dyra- stafinn, þegar ég á leið framhjá hon- um. Þegar gamlir menn rifja upp end- urminningar sínar, þá taka þeir oft kennara sína, leggja á þá mælistiku og gefa þeim einkunnir. Ég er löngu bú- inn að gefa öllum mínum gömlu kenn- urum tíu. En gáð að því, að þetta er voðalega hættuleg tala. Sjáðu um að hún verði ekki prentuð með tölustöf- um. Hugsaðu þér afleiðingamar, ef prentvillupúkinn færi á kreik í sam- bandi við þessa tvo viðsjárverðu tölu- stafi. í viðbót við þessa skólagöngu er svo heymleysingjakennaranámið, og auk þess sextíu ára stúderingar í bók lífs- ins. - Fórst þú svo ekki að kenna, strax og þú hafði aflað þér réttinda til þess? - Nei, ekki fyrr en mörgum árum seinna. Þegar ég hafði lokið kennara- prófi vorið 1941, réðist ég til manns sem hét Magnús Guðnason, og vann hjá honum það sumar og fram undir jól veturinn eftir. Magnús var einn af þessum mönnum, sem eru kallaðir þúsund þjala smiðir, bæði í gamni og alvöru. Hann var með verkstæði í Uppsalakjallaranum, smíðaði gítara og svaf á verkstæðinu. Magnús var blásnauður gáfumaður, sem fáir eða engir mátu að verðleik- um. Hann kallaði sjálfan sig uppfinn- ingamann í gamni, en hann var upp- finningamaður í alvöm. Hann hafði, meðal margs annars, fimdið upp hljóð- færi, sem hann kallaði strokhörpu. Hún gekk fyrir raffnagni. Það var eitt sinn spilað á hana í útvarpið, líklega á fjórða áratugnum. Ég heyrði þennan hljóðfæraleik. Seinna sagði Magnús mér að Páll ísólfsson hefði spilað. Ég sagði þá Magnúsi að ég hefði sjálfúr hlustað á þetta. Ég man vel eftir for- málsorðum Páls. Hann sagði að Magnús hefði náð merkilega góðum hljómi úr þessu hljóðfæri. Orðrétt: „...merkilegum tóngæðum,“ eða kannski „...miklum tóngæðum.“ Þetta man ég enn. En ekki óraði mig fyrir því þá, að ég ætti eftir að vinna hjá manninum, sem fundið hafði upp þennan merkilega hlut. Ég held að Magnús hafi verið búinn að rífa þetta hljóðfæri í sundur, þegar ég kont til hans. Hann var eitthvað að tala um að hann hefði ekki komið því fyrir. Einu sinni fann ég hjá honum í rusli, líkan af bát. Það var á að giska eitt fet á lengd, þilfar var og borðstokkur. Skuturinn var með gafli, í gaflinum var femingslagað op eða skarð, og þar hallaði þilfarinu niður að sjólínu. Líkanið, sem var kubbur, var málað svart og hvítt, og litaskiptin sýndu sjólínuna. „Hvað er þetta, Magnús?“ spurði ég. „Þetta er bara ein vitleysan úr mér,“ svaraði hann þá. „Það er ekkert að marka þetta. Ég er alltaf með einhverj- ar vitleysur í hausnum.“ Ég hef oft spurt sjálfan mig síðan: Var hún ekki þama, í mslinu hjá hon- um Magnúsi Guðnasyni í Uppsala- kjallaranum, fyrsta hugmyndin að skuttogaranum? Og ef þessu litla bátslíkani hefði verið gefinn sá gaum- ur, sem það verðskuldaði og honum Magnúsi, hvað hefði þá getað gerst? Spyr sá, sem ekki veit. Til Magnúsar komu ýmsir menn, sem ekki bundu bagga sína sömu hnútum og samferðamennimir. Þeir gistu þarna nótt og nótt, sumir margar nætur, þó að lítil væru húsakynnin, því að þar sem hjartarými er, þar er einnig húsrými. Magnús eldaði sjálfur mat sinn á verkstæðinu og sendi mig í inn- kaupaferðir og matseðillinn var hinn sami alla daga: Fiskur, mjólk, brauð og kafFi. Magnús hafði ekkert vit á peningum. Einu sinni gaf hann mér fimm krónur fyrir að kaupa fisk, sem kostaði eina krónu. Þar að auki sótti ég fiskinn í vinnutímanum, á fullu kaupi. Gmnur minn er sá, að matur- inn, sem Magnús ætlaði að borða sjálfur, hafi ærið oft farið í gesti hans, því að ekki gátu þeir sumir hveijir talist fjáðir menn, að ekki sé meira sagt. Haustið sem ég var hjá Magnúsi, gisti þar einn slíkur, í svo sem viku- tíma eða svo. Aldrei fékk ég að vita hvaðan hann var eða hvað hann hét. Magnús var tregur til að gefa upplýs- ingar um gesti sína. Þessi maður var alltaf kallaður Nafni, en nafni hvers, það var ekki látið uppi. Hann svaf yf- irleitt allan daginn og fór sjaldan út. Morgun einn, þegar ég kom til vinnu á verkstæðinu hékk þar ákaflega stór og efnismikil loðkápa úr skinni, tvöföld, og sneri loðna bæði út og inn. Hetta var og áföst kápunni. „Hvað er þetta?“ spurði ég. Magnús svaraði: „Hann á nú þetta hann Nafni. Hann segir að þetta sé loðkápan sem hann Ársæll Árnason notaði í Grænlands- leiðangurinn á Gottu, héma um árið.“ „Hvað ætlar hann að gera við þetta?“ spurði ég. „Hja, ætli hann noti hana ekki á tóf- umar,“ svaraði Magnús. Eins og allir Reykvíkingar þekkja, geta rökkvuð, lognkyrr haustkvöld í þeirri borg orðið með ólíkindum fög- ur. Á slíkum kvöldum var „rúnturinn“ í þá daga fullur af fólki. Piltar og stúlkur leiddust þar ýmist arm í arm eða gengu í hópum og töluðu saman. Ef menn geta ekki með nokkru móti trúlofast á slíkum kvöldum, þá verða þeir áreiðanlega einhleypir alla ævi. Sama er að segja um konur. Þegar ég kom á verkstæðið á morgnana, var Magnús alltaf vanur að taka á móti mér með sjóðheitu kaffi, vel sterku. Einn morgun var hann óvenju kíminn yfir kaffikönnunni og segir við mig: Heima er bezt 15

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.