Heima er bezt - 01.01.1997, Blaðsíða 44
Af
blöðum
Jóns
Hér er á ferðinni sýnisbók ritverka Jóns
Sigurðssonar um önnur efni en sjálfstæðismálið.
I henni er að finna ritgerðir um skólamál,
verslunarmál og heilbrigðismál. Tvær ritgerðir
eru mestar - um skólamál og verslunarmál. Þær
eru svo ítarlegar og efnismiklar að hvor fyrir sig
nægði í heila bók, og báðar eru brautryðjandi
verk.
Jón Sigurðsson var ekki forseti íslands en hann
var forseti íslendinga í huglægum skilningi,
frelsishetja og leiðtogi á torsóttri braut okkar til
sjálfstæðis. Sem slíkan þekkjum við hann en
höfum síður gefið gaum að öðru sem þessi
einstaklega skarpskyggni og afkastamikli fræði-
og stjórnmálamaður fékkst við og ritaði um. I
málum fósturjarðarinnar lét hann sér ekkert
óviðkomandi sem tniðað gat til framfara í landinu.
Bókin Af blöðum Jóns forseta er ætluð öllum
íslendingum því að öll hljótum við að vilja kynnast
nánar þjóðskörungi okkar, sem við tengjum landi
okkar og sjálfstæði með þjóðhátíðardeginum,
fæðingardegi hans.
Auk ritgerða Jóns Sigurðssonar er í bókinni
einstaklega aðgengileg ævisaga hans eftir Sverri
Jakobsson sagnfræðing, sem valdi ritgerðirnar.
Sverrir skrifar einnig stuttan inngang að hverri
ritgerð og skýringar við þær.
SÉRSTAKUR PÖNTUNARSEÐILL FYLGIR BLAÐINU
Takmarkað opplafl
Skjaddborg ehf
BOKAUTGAFA
Ármúla 23-108 Reykjavík - Sími 588-2400 • Fax 588 8994