Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1936, Blaðsíða 4

Æskan - 01.05.1936, Blaðsíða 4
52 ÆSKAN séð neitt þvílíkt áður. Þegar sólin skein á það spegluðust i því allir regnbogans litir. Það var engu líkara en það væri samansett af örsmáum glitrandi kristöllum. »Hvar fannstu þetta gler?« hrópaði eghiminlifandi. »Eg fann það ekki. Hann Einar gamli í Móakoti gaf mér það. Hann rakst á það, þegar hann var að stinga upp kálgarðinn sinn«, svaraði hún. »Það var svei mér gaman að fá þetta i búið sitt«, sagði eg ærið mannalegur og ætlaði að taka glerið úr lófa hennar og athuga það hetur, en þá stakk hún því í vasann, varð eitlhvað svo undarleg á svipinn og mælti með þrjóskuhreim í röddinni: »Eg læt þetta gler ekki í dótið«. »Ha? Læturðu það ekki i dótið«, át eg eftir henni; »hvers vegna ekki?« »Af því eg ælla að eiga það sjálf. Það er svo fallegt«. Þetta þótti mér í meira lagi skrítið, og heimtaði að glerið gengi i húslóðina eins og allir hlutir, er við höfðum eignast hingað til. »Heldurðu kannske, að mig hafi ekki langað lil að eiga hörpudiskinn einn, og þó gaf eg hann eftir lika«. »Já, það er nú sama«, sagði lnin og sat við sinn keip. »Eg ælla að eiga það sjálf«. »En viltu þá ekki selja mér það?« stakk eg upp á. »Ne-hei«. Eg skal láta þig fá vasahnífinn minn fyrir það«. »Hvað hefi eg að gera við vasahníf? Eg er ekki strákur«. »0g þennan snærisspotta skaltu fá.« »Eg get fengið nóg snæri hjá pabha, ef eg vil« »0g kannske munnhörpuna líka«, hætti eg við, en fékk þó sling í hjartað við þá tilhugsun að sjá af hlessuðu ldjóðfærinu mínu, sem var mér kær- ara en flest annað. En hún neitaði engu að síður, og sagðist ekki vilja sjá munnhörpu, sem aðrir væru búnir að hlása. »En ef þú færð hörpudiskinn?« sló eg fram í örvænlingu. »Þú átt ekkert með að hjóða hörpudiskinn«, svaraði hún með þjósli og hnykkti við höfðinu. »Við eigum hann hæði«. Þá fór að síga í mig fyrir alvöru, og eg slöngv- aði því framan í hana, að fyrst hún vildi ekki láta glerið í húið, ja, þá tæki eg líka hörpudiskinn aftur. »0g þá fer eg með allt það dót, sem eg heíi komið með«, svaraði hún í sama tón, og lét engan bilbug á sér finna. »Mér er alveg sama«, hrópaði eg fokvondur og hyrjaði þegar að skipta húinu sundur. — En það gekk nú ekki stórslysalaust eins og við var að húast undir svona löguðum kringumstæðum. Meðal annars var þarna helmingur af rósóttri grautarskál, sem við þóttumst bæði eiga, og lent- um þegar í hörkurifrildi út af henni, sem endaði með því, að skálin brotnaði í höndum okkar. »Þú braust skálina mína«, orgaði eg og fór að snökta. »Nú verður þú líka að láta mig fá glerið í staðinn, annars klaga eg þig fyrir pahha og mömmu«. »Svei attan«, funaði hún af hinni mestu fyrirlitn- ingu. »Þú ætlar að verða klöguskitur! Eg átti skál- ina, og það varst þú, sem braust hana!« »Þú skrökvar því, þú skrökvar því!« fnæsti eg bálvondur, rauk á hana eins og grimmur rakki og ætlaði að lirifsa glerið úr svuntuvasanum. En það fór nú á annan veg, því að eg var lítill, pervisalegur og kraftasmár, en Lilja hæði sterlc og hústin eins og áður er sagt. Nokkur augnahlik veltumst við hvort um annað þarnaí tóftinni innan um alla húslóðina, og flugumst á upp á líf og dauða. Við öskruðum og grenjuð- um, og reyndum að bíta, klóra og herja hvort annað eins rækilega og við mögulega gátum. En allt í einu skar Lilja sig í kinnina á einu glerhrot- inu, svo það loghlæddi. Hún reil' sig af mér, hentist á fætur og hljóp hágrátandi niður götuna og heim til sín. Þar með var þessum leik lokið. Eg dustaði moldina af fötum mínum og þurrk- aði framan úr mér. Eg var töluvert hruflaður á enninu, en þó ekki neitt til skaða. Og það var langt frá því, að eg sæi eftir að hafa breytl svona við frænku mína og vinu. Þvert á móti. — Vonskan út í Lilju var jafnvel enn meiri en áður, og eg strengdi þess heit, að eg skyldi ná glerinu, hvað sem það kostaði, þessu dásamlega, hálfgagnsæja gleri með regnbogalitunum. Allt ann- að, hæði á himni og jörðu var mér einkisnýtt þessa stundina, hara glerið, glerið, glerið! Eg lahhaði niður götuna og hugsaði upp livert vélahragðið á fætur öðru til að sölsa undir mig þennan dýrlega grip. Og það illa náði æ meira og meira valdi yfir áformum mínum. En samt var það nú svona, að innst inni var eitthvert eyðilegl tóm í sál minni. Eg hafði óaf- vilandi glatað einhverju miklu og dýrmætu, ein- hverju, sem eg helði síst mátt missa. Eg sá ekki lengur fegurð vormorgunsins, því að sólin var hætt að skína inn í sál mína; þar var aðeins myrkur illra hugsana. Hinar glöðu raddir fuglanna töfruðu mig ekki

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.