Æskan - 01.01.1961, Qupperneq 26
BJÖSSI BOIXA
Teikningar: J. R. Nilssen. — Texti: Johannes Farestveit.
imuwvmo»o*0909om3*o%omo9omomomomo»o»cf0909omo*omo»0909090909omomomo»09Q9omo9>)909omomcmo9i
Bjössi bolla og Þrándur hafa bjarg-
að sér undan bola, og vaSa nú í land í
bólmanum. „Nei, hvílík ósköp eru hdr
af berjum,“ hrópar Bjössi og nú taka
þeir til matar síns.
En allt í einu heyra þeir áratak úti
á vatninu og bátur nálgast hólmann.
Þeir fela sig í kjarrinu og hafa gætur
á hátnum. „Þetta er hann Óli,“ segja
þeir hvor við annan. Nú leggur hann
inn árai-nar og fer að draga netstúf,
sem hann hefur að líkindum lagt þarna.
Óli er svo önnum kafinn við starf sitt,
að hann hvorki heyrir né sér. „Það sér
nú á fyrsta fiskinn,“ hvíslar Bjössi.
„Ættum við ekki að leika dálítið með
Óla?“ Það er samþykkt af Þrándi, og
nú synda þeir liljóðlega út að bátnum.
Þegar þeir nálgast bátinn stinga þeir
sér í kaf og synda undir hann. Þeir
koma úr kafi og taka nú báðir í netið,
sem verður við það svo þungt, að Óli
ræður ekki við það.
„Til hamingju með aflann,“ hrópa
lirekkjalómarnir. Óli lætur ekki slá sig
út af laginu og kallar á móti: „Já, stór-
ir eru þorskarnir, satt er það.“
„Kallarðu okkur þorska," kallar
Bjössi, um leið og hann klifrar yfir
borðstokkinn, en þar er svo leipt, að
hann dettur beint á rassinn til skemmt-
unar fyrir Óla.
Þegar Óli hefur lokið við að draga inn
netstúfinn, róa þeir í land, og liuga að
fötum sínum, því boli er nú farinn.
Um frímerkjasöfnun.
Þið viljið sjálfsagt, að frímerki ykkar
séu slétt og falleg útlits. En þau verða það
ekki lengi, ef þið hafið þau í hrúgu á
borðinu, þvælið þeim fram og aftur og
kroppið með nöglunum undir merkin, þeg-
ar þið takið þau upp. Frímerki eru við-
kvæm og þola ekki slíka meðferð. Þá koma
brot i þau og takkarnir bögglast eða rifna
út — og þá eru þau verðlaus. Allir þeir,
sem áhuga lvafa á frímerkjasöfnun, ættu
alltaf að nota frímerkjatengur.
Gripfletirnir á frímerkjatöngum eru
sléttir og særa ekki merkin. Og þegar þið
venjist ])eim, getið þið eklti án þeirra
verið. Það er lika ólíkt fljótlegra að vinna
við merkin, ef slíkar tengur eru notaðar.
f frimerkjabækurnar ykkar límið þið ein-
ungis lirein og ógölluð merki. Gætið þess,
að takkarnir séu heilir, og að enga vanti.
Þegar ]>ið atliugið takkana, skuluð þið
liafa eitthvað döklit undir þeim, og látið
])á myndina snúa niður. Æskilegast væri
að þið hefðuð stækkunargler við frímerkja-
athuganirnar.
☆
24 Eigandi þessa blaðs er