Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1963, Síða 14

Æskan - 01.02.1963, Síða 14
ÆSKAN Frá u ngl i ngaregl u n n i. Úr bréfi til stérgæzlumanns. ^"Vf sjaldan gc-ta gæzlumenn barna- stúknanna borið saman ráð sín um télagsstarfið í stúkunum. Væri ()ó æskilegt, að þeir gætu skýrt Iiver öðrum frá reynslu sinni, til að gera stúkustarfið sem frjóast og skemmtilegast fyrir börnin. Og ekki sízt, hvernig heppilegast er, að börnin mótist í anda liófsemi og bindindis. Fyrir tveimur árum fengu barnastúk- urnar nýja siðbók. Var liún gerð með bliðsjón af siðbók norsku barnastúkn- anna. Þetta voru góð skipti. Hin nýja sið- bók hefur marga kosti fram yfir þá gömlu. Má l>ar til nefna, að bún er styttri og ávörpin hnitmiðuð. Þá er bindindislieit- inu sleppt og fellur mér ]>að vel, þar sem um börn er að ræða. Mér þótti góð sending leikritin, sem Stórstúkan sendi barnastúkunum í fyrra. Keypti ég þrjár bækur í viðbót frá stór- gæzlumanni til þess að losna við uppskrift á blutverkum, og vil ég benda fleirum á að fara eins að. Oft er lítill tími milli funda til afritunar. í fjölmennum barnastúkum skapast oft ýmis vandamál i sambandi við fundina, og má gæta þess, að of mikill tími fari ekki í ýmsa siði og störf, sem verða þreyt- andi fyrir börnin. Vil ég skýra hér frá reynslu minni í ]>essu efni, ef fleiri vildu l'ara svipað að. Barnastúkan Samúð hefur fundi í Odd- eyrarskólanum á Akureyri annan hvern sunnudag. Fundarsalurinn er svo lítill, að ég hef orðið að skipta stúkunni í tvennt. Fundir eru fyrst í yngri flokknum og eru i honum 7—í) ára börn. Eru 9 ára börnin í embættum. í eldri flokknum eru 1(1 ára börn og eldri, og unglingarnir. Inntaka fer aðeins fram í eldri flokknum, og þar er fundargjörð rituð. Vegna þrengsla i fundarsalnum tók ég upp þá venju að láta merkja við nöfn barnanna í viðveruskrá i anddyri um leið og ]>au koma inn. Einnig er umgangsorð- ið tekið i innri dyrum. betta sparar tima á fundinum. En ekki er þörf að ’nota þess- ar venjur, nema i fjölmennum stúkum. Bróðurlegast. Eiríkur Sigurðsson. Langrækni. Mælt er, að þegar hinn heimsfrægi ítalski listmálari, Leonardó da Vinci, málaði hina kunnu mynd sína af kvöldmáltíðinni, hafi honum allt í einu dottið i liug að mála Júdas í IOGT gervi óvinar síns. Eins og venjulega gekk hann með áliuga og festu að verki sínu og innan skamms var svip- ur Júdasar fullmótaður með andlits- dráttum óvinarins, sem hann hataði svo mjög. Því næst fór listamaðurinn að mála myndina af Kristi. En þótt hann legði sig allan fram og beindi huga sínum til írelsarans, komu andlitsdrættir ó- vinar hans alltaf í ljós. Þannig vann hann lengi án nokkurs árangurs. Að lokum komst hann að þeirri niðurstöðu, að meðan hatur byggi í huga hans, mundi hann ekki geta séð dýrð guðs og því síður málað hana á léreftið. Þá bað hann guð að fyrirgefa sér, sættist fullum sáttum við óvin sinn og náði andlitsdráttum hans af mynd- inni. Þá öðlaðist hann frið og kraft til að ljúka listaverkinu, til að móta myndina af Kristi, sem allir dá, er njóta, vegna fegurðar þeirrar og göfgi, sem birtist í svip hans. Endursagt af S.G. Nauðsynlegt er að hirðing tannanna hefjist eins fljótt og auðið er, svo að hreinsun tann- anna verði barninu eins sjálf- sögð og að þvo sér um hend- ur og andlit. — Tennurnar þarf að bursta að lokinni hverri máltíð og umfram allt að sofa með lireinar tennur. Við burstun ber að gæta þess, að hár burstans nái inn milli tannanna í skorur og ójöfnur á öllum flötum þeirra, og fjar- lægi leifar, sem þar kunna að leynast. Ein aðferð er sú, að leggja burstann þannig að tönnum þeim, sem hreinsa skal, að bár hans beinist að rótum þeirra og leggist skáhallt að tannholdinu, en dragist siðan niður eftir því og eftir yfir- borði tannanna í átt að bit- fleti þeirra. I’annig eru tenn- ur efri góms burstaðar niður, en neðri tennur upp á við; bit- fleti skal bursta fram og aft- ur. Tannbursti á að vera nægi- lega lítill lil þess að auðvelt sé að koma honum að öllum flötum tanna að utan og inn- •an. Burstunarflötur hans skal vera beinn og hárin stinn. Bezt er að eiga tvo bursta, nota þá til skiptis, hreinsa þá og láta þorna vel á milli notkunar. ’★★★★★★★★★★★★★★* HIRÐING TANNA 46

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.