Æskan - 01.12.1984, Side 44
siefAnjúlíussgn
Kárt licli
ískólanum
Nýjar bœkur
frá
Æskunni
Fimmtán ára á föstu
eftir Eðvarð Ingólfsson.
Hún heitir Lísa og er fimmtán
ára, dökkhærð, brúneygð og
ólýsanlega sæt. Hún er
draumadís allra stráka. Árni,
bekkjarbróðir hennar, er svo
hrifinn af henni að hann
verður stundum andvaka af
ást. En Lísa er á föstu með
mótorhjólatöffara. Árni
hefur gefið upp alla von um
að ná í draumadísina. Þá
verða óvæntir atburðir og
spenna færist í leikinn . . .
Fimmtán ára á föstu er
spennandi, skemmtileg og
opinská unglingasaga. Hún
gerist á einu sumri og í lok
bókarinnar hafa mikil tíðindi
gerst svo að framtíðar-
horfurnar eru aðrar en búast
hefði mátt við . .
Fimmtán ára á föstu
— Pottþétt unglingabók
Kári litli í skólanum
eftir Stefán Júlíusson,
myndskreytt af Halldóri
Péturssyni.
„Stefán Júlíusson sýndi strax
með fyrstu bók sinni að hann
skildi mikilvægi hins hvers-
dagslega fyrir barnshugann.
Það er enginn reyfarabragur
á sögunni um Kára litla og
Lappa. En hún er sögð af
íþrótt sögumanns og nær-
færnum skilningi á barns-
sálinni. Því er þetta góð saga
og holl til lestrar“ — var ritað
í blaðadómi um Kára litla og
Lappa. Þau ummæli eiga ekki
síður við um Kára litla í
skólanum. Þessi vandaða 6.
útgáfa er listaverk í máli og
myndum. Hún mun eflaust
enn sem fyrr höfða til barna á
aldrinum sex til ellefu ára.
etu
B*kutnat
Júlíus
í þýðingu Guðna
Kolbeinssonar.
Júlíus er simpansi sem
fæddist í dýragarðinum í
Kristiansand í Nogegi. Hinir
aparnir útskúfuðu honum og
því ólst hann upp meðal
manna og gleymdi næstum
meðbræðrum sínum. En
mennirnir vissu að þeir yrðu
að fá ættingja Júlíusar til að
taka við honum á ný . . .
Þetta er hugljúf og heillandi
saga með ljómandi fallegum,
litríkum myndum. Júlíus
hefur töfrað norsk börn og
fjölskyldur þeirra. Nú er
röðin komin að okkur . .
Bókin er fyrir allan aldur —
frá fjögurra ára.