Kyndill - 01.03.1934, Blaðsíða 3
KyndiU
Rikisanðvald
— Rfklsrekstnr
SfOastl Þáttnr anOvaldssklpnlagsIns
ForboOI hlns nýja pJdOskipnlags
Við lifum á tímum andstæðna og átaka. Núlifandi
kynslóð hefir verið hlustandi, áhorfandi — og þátttak-
andi — að hryllilegasta hildarleik mannkynsins, heims-
styrjaldarinnar miklu, sem flest ríki jarðar urðu beinir
þátttakendur í. Við höfum iifað á tímum umfangsmestu
og víðtækustu þjóðfélagsbyltinganna, sem þekkst hafa.
Og á þessum árum lifum við þá harðvítugustu og víð-
tækustu fjárhagskreppu auðvaldsskipulagsins, sem yfir
hefir dunið. Er því sízt að furða þó við veitum því fyrir
okkur, hvort við munum lifa hrun auðvaldsþjóðskipu-
lagsins í núverandi mynd, og þá lifa — annað hvort
eyðileggjandi óskapnað þriðja ríkisins eða sköpun og
þróun nýs þjóðskipulags. Hvaö boðar þessi umbrota-
tími, rökkur, ragnarök, eða dögun, árroða hins nýja
dags?
Fjöldanum eykst skiiningur dag frá degi á þeirri
staðreynd, að yfirstandandi kreppa er annað og ineira
en venjulegt fyrirbrigði þeirrar tegundar, hún er heSms-
kreppa, kreppa auðvaldsins sjálfs.
1
1