Kyndill - 01.03.1934, Qupperneq 4
Kyndill
Rikisauðvald
rikisrekstur
Aldrei hafa mótsetningar auðvaldsins innbyrðis veriö'
jafnskarpar og nú.
Framleitt er meira en nokkru sinni fyrr með vélaafli,
en framleiðslan er eyðilögð með skipulagsleysi sam-
keppninnar, svo afleiðingin verður geysilegt atvinnu- ^
leysi og fjárhagslegt hrun.
Orð þýzka alþýðuforingjans Ágústs Bebel, sem eru
rituð fyrir hálfri öld síðan, eiga sannarlega við í dag.
Hann segir: „Pjóðfélagið stendur ráðprota gagnvart
sínum eigin illkynjuðu meinum, vílandi og naut-
heimskt. Það vill gjarnan hjálpa, en er of veikt. Þeir,
sem ætla að hjálpa, eru skilningslausir, og þeir, sem
eiga að hjálpa, vilja ekki. Þeir treysta á vald sitt eða |
í hæsta lagi hugsa sém svo, að á eftir peim komi synda-
flóðið. En ef syndaflóðið kæmi nú á þeirra Iífsdögum?“
Nú er syndaflóðið komið, en jafnframt hafa skapast *
ný öfl og nýr skilningur. Sannfæringin um nauðsyn nýs
þjóðskipulags og nýrra framleiðsluhátta er ekki lengur *
séreign verkalýðsins; bændur og millistéttamenn til-
einka sér sem óðast hlutdeild í þeim sannindum. Yfir-
stéttin óttast vaxandi óánægju og andúð gegn hennar
þjóðskipulagi. Sá ótti lýsir sér í fasistahreyfingunni —
nazismanum —, þar sem yfirstéttin gerir tilraun að leiða |
fólkið í tálgryfjur undir,fölsku „socia!istisku“ yfirskini.
En fasistahreyfingin, sem er síðasta ráð auðvaldsins
til að vernda einkaréttindi sín — arðránsmöguleikana t
—, er einmitt sterkur vitnisburður um nýtt voldúgt
afl — afl verklýðssamtakanna faglega og pólitískt.
Þegar Hitlers-aðdáandinn Georg Strasser þykist halda
2