Kyndill - 01.03.1934, Page 31
Kyndili
\
■ vy. ;'i/..
Þankar
Þaö kennir oft nokkurs misskilnings hjá mönnum, er
|)eir gera sér grein fyrir stefnu jafnaðarmanna. And-
stæðingar jafnaðarstefnunnar reyna líka óspart að
koma inn alls konar blekkingum hjá almenningi og
reyna að telja mönnum trú um, að jafnaðarmenn vilji
allt annað en stefnan segir í raun og veru, ef hún er
nákvæmiega ígrunduð. Orðin jafnaðarmaður og jafnað-
arstefna eru oft á tíðum misnotuð og talin merkja, að
allt eigi að vera jafnt. Auðurinn, — sem vitanlega jer á
fáum höndum, — sé hlutur, sem jafnaðarmenn vilji
safna saman á einn stað og deila svo með höfðafjöld-
anum í hrúguna, og þá fái.allir jafnt. Vitanlega berjast
jafnaðarmenn fyrir réttlátri skiftingu auðsins og arði
framleiðslunnar. En [)aö, sem við jafnaðarmenn teljurn
auð, er ekki pappírsseðlar tryggðir með gullklumpum.
Enginn maður getur fæðst og klæðst af slíkum hlutum,
Auðurinn hlýtur því að vera eitthvað annað.
Auðmaðurinn á fjármagn. En hann lifir ekki á pví.
Hann lifir á lífsgæðum, sem framleidd eru dag frá 'degi
af iðju, sem beitt er á fjármagnið. Auðmaðurinn á land.
En hann lifir ekki á því. Hann lifir á lífsgæðum, sem
28