Kyndill - 01.03.1934, Page 41
Prófessor Julius Tandler
Kyndill
af f>ví, sem einkennir Wien, er hinn stóri fjöldi af
barnabaðstöðum, þar sem börnin geta baðað sig allan
daginn og notið sólarinnar. Auk þess var víða komið
upp fullkomnum baðstöðum fyrir almenning, og eru
sumir þeirra frægir orðnir. Margt fleira mætti telja,
er gert var til þess að bæta lífskjör barna og unglinga.
Árangurinn af starfi prófessors Tandler hefir þegar
komið iíljós. Berkladauði hefir lækkað úr 3%0'|!) árið
1913 til 1,8 %0 1933. Dauði úr lungnatæringu hefir
lækkað um helming. Þetta eru að eins smá dæmi um
hve mikið er hægt að gera á að eins 15 árum.
Fullar líkur eru til að DoIIfuss geri hið mikla afrek
prófessors Tandlers 'að engu og Wienarbúar fái ekki
aftur tækifæri til að njóta hinna ágætu starfshæfileika
hans, sem átti 65 ára afmæli sama daginn og Karl
t. Marx Hof varð að gefast upp fyrir fallbyssum Dollfuss.
Péíur Halldórsson.
*) °ioo = af púsundi.