Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1900, Qupperneq 117
95
Quebec), þegar hann seldi það hérað ai hendi
og kallaði , .nokkrar ekrur af snjó'1. Hvort Hud-
sonsflóa-félagið sjálft hefur haft greinilega hug-
mynd ura verðmæti eignar sinnar þá, er óvíst,
en víst er það, að á 200 árunum, sem félagið hélt
eign þessari, voru tekjur þess fyrir dýrafeldi
eingöngu um 100 miljönir dollars. eða um hálfa
milj. dollars á ári hverju að meðaltali, en stofn-
fé Hlagsins í hyi jun ekki nema 50,000 dollars
(£10,500). Og svo þegar félagið loks seldi Canada-
mönnum landeign sína, fékk það sem borgun
tutt ugustu hverja ferhyrningsmílu af þessu sama
landi og 1)4 milj doll. í peningum. Landeign
félagsins eftir sem áður er þessvettna á við miðl-
ungs keisaraveldi, væri það í einni spildu.
Þá var það og rausnarleg gjöf, er Jakob I.
gaf Stirling lávarði alla Canada og það skilyrð-
islaust! Stirling lávarður var þá ekki kominn
hærra en að vera Sir William Alexander, en var
skáldmæltur vel og mikill vin konungs. Það
var 21. sept. 1621, að konungur gaf Vilhjálmi
skáldi Canada, og þar með fylgdi Nova Scotia
[Acadia] og Nýfundnaland. En skáldinu hélst
ekki lengi á gjöfinni. Það risu upp menn, er
álitu gjöfina ólöglega, og af því leiddi málarekst-
ur, er lyktaði með því, að Canada varð eign
krúnunnar á ný.
Ein rausnar-gjöfin enn var það, er Prince-
Eiward-eyjan öll var gefin uppgjafa-hermönn-
um. Eyjan er vitanlega litil, tæpar 3000 fer-
hyrningsmílur að flatarmáli, en hún er ágætis
land,—frjðsamur jarðvegur og úrgangslaus al-
veg, en fiskitekja hin bestaí fióanum umhverfis,
—enda var eyjan all-vel bygð orðin, er hún var
þannig gefin mönnum, sem mnrgir hverjir aldrei
höfðu séð hana og því síður búið þar. Þar voru
þá risin upp þrjú vænieg þorp og einnig þau
fylgdu gjöfinni, þ. e., landið, sem húsin stóðu á.
Og þetta var gert árið 1767. Þegar fj’lkjasam-
band Canada myndaðist 100 árum síðar, mátti
liin unga Canada-stjórn kaupa eignir þessara
„erlendu landsdrottna“, — eyjuna alla, fyrir
800,000 dollara.
Bandaríkin hafa heldur ekki farið varhluta