Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1904, Side 97
61
höföu allmargir íslendingar tekiö þátt í fasteigna-
verslun þessari sumariö 1881. Voru þeir auðvitaö
miklu fleiri en þeir, sem bent er á hér að framan.
Þar eru að eins fáein dæmi til tínd af ótal mörgum,
og eru alveg af handahófl tekiu. Um hauslið var það
heill hópur oröinn af Islendingum, sem keypt höföu
bæjarlóðir, látiö á þeim gjöra hús, og ýmist selt aftur
með töluveiðum ágóða, eða þeir áttu þau,í von um að
geta selt þau þá og þegar.
I nóvembermánuði um haustið kom mönnum
saman um að stofna til félagsskapar með íslendingum
í því skyni að reka þessa fasteignaverslun í stærra std
en að undanförnu. Gengust fyrir því ýmsir hinna
fremstu drengja og félagslyndustu í bænum og fekk
það því góðan byr. Flestir, sem komist höfðu yfir
eitthvað af fasteignum, voru fúsir á að ganga í fé-
lagið. Var Jón Júlíus kosinn framkvæmdarstjóri þess.
Sjálft var félagið nefnt ,, Avaxtarsjóður Jóns Júlíusar
og félaga“. Meðráðendur skyldi framkvæmdarstjóri
hafa tvo, og voru til þess kjörnir Ivristján Jónsson,
Björnssonar, frá Héðinshöfða og Friðfinnur Jóhann-
esson frá Skriðu í Hörgárdal.
Nú voru fasteignir allra þeirra, sem í félagið
gengu, virtar eða metnar til verðs og rnun þá verðið
oftast nær hafa verið ákveðið nokkuö hátt, til þess
menn yrðu sem ánægðastir. Enginn lagði eins mikl-
ar eigur fram og Jón Júlíus. Hann gekk inn í félagið
með eignir sem metnar voru á 2,049 doll. og 40 cts.
Auk þess gengu margir inn í félagsskap þenna með
töluverðar eignir og setjum vér hér dálitla skrá yfir
mennina, er félagsskap þenna mynduðu, og eigur
hvers eins eftir mati við inngöngu. Er bæði fróðlegt