Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1904, Page 103
67
forstööumönnum þess alt til foráttu og töluðu um alt
saman eins og eina ógurlega fjárglæfraför, er menn
heföu látið ginnast út í. Var þá ekki annað til ráða
en að slíta félagsskapnum, enda var nú að því gengið.
Var þá öllum eignum félagsins skift með félagsmönnum
eftir þeirri virðing.sem áþeim var. Nokkurir þeirra voru
búnir að fá eignir sínar þegar útborgaðar og höfðu
notið góðs af gróða félagsins ineðan best gekk. Sumir
voru nú komnir út á landsbygðina og farnir að búa.
En æði-margir áttu enn alt sitt, eða nokkurn veginn
það, í félaginu. Milli þeirra var nú eignunurn skift
eftir eins réttum hlutföllum og unt var og varð þá
kylfa að ráða kasti með það, hvað hverjum einum
varð úr því, sem honutn hlotnaðist.
Eitt af hlutabréfum félagsins höfum vér svo fræg-
ur orðið að sjá. Það má telja það víst, að mörgum
þyki nú.fróðlegt að sjá, hvernig þau litu út, þar sem
svo langur tími er liðinn. Setjum vér það því hér
orðrétt :
,,HL(JTABRÉF.
JOHN JULIUS & CO.
$100.00. Hlutabréf nr. 87.
Samkvæmt lögum þessa félags, dagsettum
22. febrúar 1882, er herra ............. löglegur eig-
andi að eitt hundrað dullara innstæöu í verslunar-
sjóðnum.
Til þess að hlutabréf þetta geti oröið lögleg
eign annars manns, þarf áritað sampykki félags-
stjórnarinnar.
Winnipeg, Man., 1. júní 1882.
T T ) Friðfinnur Jóhannesson.
JOHN JULIUS. ,■ jr , ,/
J J | KrISTJAN JÓNSSON. “