Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1904, Síða 113
77
geti ]>eir ekki sé5, a5 þa5 sé nein hætta fyrir hann aö
koma, því landar hans hér muni bæöi hafa vilja og
megin til aö launa honum sómasamlega; skuli nú þeg-
. ar tekiö til starfa aö búa undir komu hans á næsta
vori. Mennirnir, er kosnir voru, til að rita honum
bréf þetta, voru þeir Friöjón Friöriksson, Arni Friö-
riksson og Kristján Jónsson. Kveldinu eftir var ann-
5 ar fundur haldinn og bréfiö lesið upþ, sem þessir þrír
menn höfðu stílað. Voru þá fleiri á fundi, svo undir-
skriftir fengust allmargar undir bréfiö.
í 36. tölublaði Lcifs (1. árg.) dags. 11. jan. 1884
stendur þessi bréfkafli frá síra Jóni, og er hann úr
bréfi rituðu á Seyðisfirði 27. nóv. 1883.
,,Eg sagði formlega af mér Seyðisfjarðar-presta-
kalli til biskups með síðustu póstferð, svo þér sjáið,
að þaö er afgerður hlutur, aö viö ætlum að koma á
þeim tíma, sem lofað var. “
Seint á vetri (9. mars 1884) var boðað til safn-
aðarlundar af forseta safnaðarins Sveini Björnssyni til
aö ræða nauðsynjamál safnaðarins. Segir hann tíma
til þess kominn fyrir þá, sem á annað borð ætli að
skifta sér nokkuö af safnaðarmálum, að þeir fari að
búa sig undir að taka á móti síra Jóni Bjarnasyni,
sem eins og öllum sé kunnugt, sé væntanlegur snemma
á næstkomanda sumri til þess að gjörast prestur.
Bendir hann á í sambandi viö nauðs}*nina, er til þess
sé, aö prestur komi, aö ásigkomulag æskulýðsins í
kristilegu tilliti geti naumast á lægra stigi staðið en
það sé nú um þessar mundir. Hin uppvaxandi kyn-
slóð sé í voða í kristilegu tilliti, svo framarlega hinir
eldri taki ekki rögg á sig í safnaðarmálum.
Hvernig fundur þessi hefir gengið, er ekki hægt