Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1904, Síða 115
79
30. SÍRA JÓN BJARNASON BYRJAR STARF SITT.
Miövikudaginn 20. ág. flutti síra Jón Bjarnason
íyrstu guBsþjónustugjörö í Framfarafélagshúsi Islend-
inga og heilsaöi þar upp á landa sína. Fólksfjöldinn
var svo mikill, aö fjöldi manna hlaut að standa, en í
húsinu gat setið á þriöja hundrað manns. Prédikun
sú, sem hann flutti viö það tækifæri er prentuð í Leifi
(II, 19, 12. sept. 84) og hefir fyrir texta frásögn Matte-
usar (17, 1—9) uin ummyndun frelsarans á fjallinu og
sérstaklega þessi orð Péturs: Gott er, að vér erum
hér, herra. Niðurlag ræðu þessarar setjum vér hér:
,,PIvað liggur þá næst að vér gjörum, sem svo oft
finst mikið tii um myrkur lífsins og dauðans? Og á
hverju eigum ver fyrst að byrja, sem höfum í huga að
halda hér uppi kristnum söfnuði fyrir oss og landa
vora? A hverju ríður inér mest, sem kominn er hing-
að í hóp yðar, til þess að flytja yður boðskap kristin-
flómsins, og á hverju ríður yður mest, þér sem hlýðið
á prédikun orðsins, á hverju ríður oss, hverjum fyrir
sig mest af öllu? Ó, vissulega á því að skerpa trúar-
sjón vora, svo að vér daglega getum haft hina guð-
dómlegu dýrðarmynd frelsara vors tyrir sálarsjón
vorri. Með dýrðarmynd hans fyrir augum, með lif-
andi trú á hans guðdóm, væri oss óhætt að líta í einu
yfir allar hörmungar mannlífsins, óhætt að horfa fram
á hina óteljandi erviöleika, sem við má búast að mæti
oss í starfi voru á vegi vorum, óhætt að skoða kross-
inn, sem hvílir á herðum svo margra, og sem, ef til
vill, er búinn hinu veika baki sjálfra vor, óhætt að
horfa framan í dauðann í hans ýmsu, ægilegu mynd-
um, óhætt að renna huga vorum inn í eilífðina. Alt
J>að, sem annars er svo voðalegt, ummyndast og fær