Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1904, Side 125
89
aö þessi tillaga hans nnindi bera nokkurn heillavæn-
legan árangur þegar áöur en fundi var slitiö, því hann
baðst þess, þegar búið var aö kjósa nefndina, að mál-
inu væri vísað frá aftur. En þaö vildu menn ekki.
Ritstjóri Leifs hefir veriö einn af þeim, sem tóku sér
þaö allnærri, að félagsskapur þessi skyldi stefnulaus
kallaöur. Hann ritar all-langa vörn í blað sitt fyrir
hönd félagsins. Hann sýnir fram á, hvernig menn
hafi barist áfram nreö félagsskapinn, fyrst í leiguhús-
um og oröið að hrekjast stað úr staö ,,eins og reykur
í lofti‘ ‘, þangað til félagið eignaðist lóö og braust í
því að láta reisa þar hús. Aö því búnu hafi organ
veriö keypt, er kostað hafi 200 doll. Barnaskóli hafi
haldinn veriö í húsinu í tvo vetur aö tilhlutun félags-
ins. Það hafi líka gjört sér aö skyldu aö hjálpa veik-
um og nauðstöddum Islendingum bæöi hér og víöar-
Eitt sinn hafi þaö sent túlk á rnóti vesturförum og
kostað til þess ærnu fé. Stúlku einni hafi þaö gefið
60 doll. til aö læra organslátt, svo félagiö gæti haft
gagn af organinu. Svo hafi ýms önnur félög myndast
út af Framfarafélaginu, er haft hafi mikla og góöa
starfsemi með höndum. Kvenfélagið eigi tilorðning
sína Framfarafélaginu að þakka og það starfi nú ó-
trauðlega í sömu átt, að „almenningsheillum þjóðar
sinnar. “ Hið sama sé að segja um Söngfélagið, ,,er
nú æfir sig í hinni fögru söngíþrótt, senr lofuð er um
allan heim, þegar hún er vel numin“; þaö hafi mynd-
ast vegna þess, að Framfarafélagið hafi áður verið til.
En til er fundabók Framfarafélagsins, sem vér
höfurn komist yfir. Nokkuð er framan af henni rifið
og fyrsti fundargjörningur, sem hægt er að sjá dag-
setning á, er eftir fund, sem haldinn var 30. mars