Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1904, Síða 133
97
varið til hjálpar íólkinu. Mikill rekstur var í félaginu
gjör veturinn 1883 út af fé þessu og reikningum; var
út af því eytt mörgum oröum og stundum svo heitt á
fundum, aö slíta varð, sökum óreglu. Yfirleitt hefir
verið nokkuð gjóstugt og stormasamt í félaginu vetur
þenna. Þau tvö aðalmál, sem félagið hafði með
höndum, húsbyggingarmálið og blaðfyrirtækið, voru
of erfið og umfangsmikil til þess að félagið að svo
stöddu gæti færst þau í fang. Eina málið, sem félagið
starfaði að, var barnakenslan og sýnast allir hafa verið
ánægöir með hana. Töluvert mörg börn og unglingar
virðast hafa tekið þátt í henni um veturinn, svo ráða
varð tvo kennara, þegar fram í sótti. Magnús Páls-
son var fyrir kenslu þessari og þótti víst alment hon-
um farast hún prýðilega úr hendi. Honum til að-
stoðar við kensluna var Stefán Pálsson, sem þetta ár
var lengi skrifari félagsins og fært hefir allmarga fund-
argjörninga til bókar, þegar Sveinn Björnsson hætti,
eftir að hafa um langan tíma gegnt þeim störfum sér-
lega vel.
Sumarið 1883 var kjörfundur haldinn í júnf. Til
forseta var þá kosinn Baldvin Baldvinsson, til skrifara
Sveinn Björnsson, til féhirðis Arni Friðriksson, til
siðagætis Arngrímur Jónsson, til bókavarðar Jón
Jónsson (Björnssonar), til varaforseta Sigurbjörn Stef-
ánsson, til varaskrifara Stefán Pálsson. Helsta málið,
sem félagið hafði með höndum um sumarið (1883),
var að leiðbeina og liðsinna fólki, er þá kom frá
íslandi. Var Baldyin Baldvinsson til þess kjörinn að
hafa umsjóri' á hendi yfir þéssu; gjörir hann glogga
skilagrein fyrir þessari frammistöðu sinni á fundi,
sem haldinn var 4. okt., og hefir þess hér að framan