Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1904, Side 153
með jötum fyrir framan. I fjórum röðunum snúa kýrnar höfðum
saman, en hin fimta gengur meðfram skilrúminu milli hesta og kúa-
fjóssins. En milli jatanna eru mjóir gangvegir fyrir þá, sem skepn-
urnar hirða. Er heyinu þrýst niður um göt í heyloftinu og látið falla
niður í gangvegina. Tekur svo sá, er gripina hirðir, heyið þar upp
og leggur það fyrir gripina. I hverri röð eru 16 básar og er hér því
rúm fyrir 80 fullorðna gripi. Með fram norður hlið er 5 fóta breiður
gangur eftir öllu fjósinu frá einum enda til annars. Eftir honum má
ganga til að sjá, hvernig öllu líður í fjósinu og komast á hvern þann
stað, er maður vill. A suðurhliðinni eru fjórar dyr, en inn af hverj-
um dyrum gengur flór þvers yfir fjósið, og er mykjan tekin þar upp í
hjólbörur, og færð út í mykjusleðann, sem stendur fyrir utan dyrnar.
Þó hús þetta sé stórt, gjörir það ekki betur en hýsa peniug þann all-
an, sem til er á búinu. Kostað mun húsið hafa nálægt 5,000 doll.
— Þegar Skafti heitinn Arason féll frá, var bú hans virt á 32 þúsundir
dollara, og er þó sagt að virðingin hafi verið með vilja gjörð heldur
lág, 20 prct. lægri en það sem talið er vanalegt gangverð. I Argyle
hafði hann búið síðan 1881 og má þetta því heita árangurinn af 22
ára búskap; skuldir munu engar hafa hvílt á búinu.
SAIÁVEGIS.
í Bandaríkjunum eru um tvö hundruð þúsund mílur af járn-
hrautum, sem gufuvagnar ganga eftir, og eykst sá mílufjöldi stcðugt.
Við þær járnbrautir vinna meir en ein miljón manna og nemur kaup
þeirra yfir sex hundruð miljón dollars á ári. Höfuðstóll þeirra járn-
brauta er yfir tólf biljónir dollars. A árinu igc2 var gróði þeirra
samanlagður yfir eina biljón og sex hundruð miljónir dollars A því
ári fluttu þær meir en sex hundruð miljónir farþega og eina biljón og
eitt hundrað biljónir tonna af flutningi.
Síðan gullið fanst í California 1848, hefir veriö tekið upp af þeim
málmi þar um ein biijón og fjögur hundruð miljónir dollars virði.
í New York borg eru tvisvar sinnum eins margir Irarog íDublin
hundrað þúsund fleiri Þjóðverjar en í Hamborg og fleiri Italir en í
Elorence.
Á Frakklandi og á Ítalíu eru búin til stærst brauð, — því hér er
ekki átt við,,brauð“ prestanna á fslandi. Hið ítalska ,,pípu“-brauð
er bakað í hleifum, sem eru 2 til 3 fet á lengd. En á Frakklandi eru
brauðin í lögun iík afar-löngum sívalning, s\m að einn brauðhleifur
er 4 eða 5 fet á lengd og oft 6 fet.