Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1904, Blaðsíða 161
ÁGRIP AF REGLUGJÖRÐ
mn ráðstöfim niálma á Dominion-löndum í Manitoba og
Norðvesturlandinu.
KOL
Kolaland fæst til kaups á $10.00 ekran þegar um linkol er að ræða, en $20.00 ekran fyrir
harðkol. Engum einstaklingi eða félagi er selt meir en 320 ekrur. Auk þess skal kaupandr
greiða stjórnargjald (Rovalty) af því, sem lir námunum er tekið, eftir því sem ákveðið kann
að verða með leyndarráðs-samþykt við og við.
MÁLMGRJÓT (tíUARTz).
Einstaklingar, sem eru átján ára að aldri eða þar yfir, og hlutafélög, er hafa ,,Free Min-
er’s‘‘-skírteini, geta látið skrifa sig fj’rir námubletti eða lóð.
,,Free Miner’s“-skírteini er veitt fyrir eitt eða fleiri ár, en þó eV.ki til lengri tíma en fimm
ára gegn því, að einstaklingar borgi fyrir þau $10.00 á ári fyrirfram, en hlutafélög frá $50.00
til $100.00 á ári eftir höfuðstóls-upphæð sinni.
Skírteinishafi, sem uppgötvað hefir málm á einhverjum stað, má afmarka sér þar námu,
lóð sem sé 1500 fet á lengd og 1500 fet á breidd.
Gialdið fyrir að rita einhvern fyrir námulóð er $5.00.
Sá, sem þannig hefir numið námulóð, verður að eyða að minsta kosti $100.00 a ári 1 liana.
eða borga þá upphæð til hlutaðeigandi ..Mining Recorder*' í staðinn. Þegar námuhafi hefir
þannig eytt $500.00 eða borgað þá, má hann, eftir að hafa látið mæla lóðina og uppfylt aðra
skilmála, kaupa landið fyrir $1 ekruna.
Afsalsbréf (patents) fyrir námulóðum skulu innihalda ákvæði um, að af seldum afurðuni
lóðanna skuli greitt stjórnargjald sem ekki yfirstici fimm af hundraði.
Gullsands eða „Placer" námulóðir eru vanalega 100 fet á hvern veg; innritunargjald fyrir
þær er $5.00 hverja, sem endurnýist eða borgist árlega.
Sá sem leyst hefir „Free Miner’s“-skírteini getur einungis fengið tvö vélagraftrar
fimm mílur hvert, er nái yfir tuttugu ár, og má innanríkis-ráðgjafinn endurnýja þau ef honum
sýnist.
Leyfishafi skal hafa eina graftrarvél í gangi innan eins sumars frá dagsetningu lej’fisins
fyrir hverjar fimm mflur, en þegar einstaklingur eða félag hefir fengið meir en eitt leyfi, næg-
ir ein graftrarvél fyrir hverjar fimtán mílur eða brot úr þeim. Afgjald af hverri mílu af ár
sem þannig er leigð, er S10.00 á ári. Auk þess greiðist stjórnargjald, er nemur tveimurog
hálfum aí hundraði, af því sem upp er grafið eftir að það nemur yfir $10,000.00 að verðhæð.
STEINOLÍA.
Alt Dominion-land, sem ekki er þegar numið eða ráðstafað í Manitoba og Norðvestur-
landinu, skal vera opið til steinolíu-leitar. Ef sá, sem leitar, skyldi finna olíu í svo ríkuleg-
um mæli að það borgi sig að byrja starf, þá má hann fá 640 ekrur af ónumdu og óafhentu
landi, sem liggi að og innifeli í sér blettiun, er hann fann olíu á, fyrir $1 ekruna, og borgi auk
þess það stjórnargjald, sem ákveðið kann að verða með leyndarráðs-samþykt.
JAMES A. SMART,
DEPUTY MINISTER OF THE INTERIOR.