Afturelding - 01.01.1942, Síða 6
6
AFTURELDlNG
í hvítri blússu með rauðum röndum, já, með hatt,
pípu, hníf og byssu. Par á eftir kemur han,s æðsti
maður og' er næstum eins fínn og hann sjálfur.
Síðan kemur hópur burðarmanna, en það eru þræl-
ar frá ýmsum þjóðflokkum. Þeir eru víst um 20,
sem bera byrðarnar. 1 flýti eru byggð 4 hús úr
timbri, þar sem gestirnir eiga að búa. Allt þorpið
er þar samankomið til að skoða.
AkeJe-höfðinginn er virkilega mikilmenni sem
getur stjórnað! Og það er auðséð, að bæði þræl-
arnir og hans nánustu menn óttast hann. Hann
hefir svipu í hönd úr skinni af vatnahesti, og þeim
grip kann hann að beita. Að liðinni nóttu tekur
h,ann upp varning sinn í návist hins undrandi
mannfjölda. Þar eru allskonar gripir: Vefnaðar-
vara, hnifar, pottar, .speglar, steinker, mittisskinn,
glerperlur í öllum litum, byssur oig margt fleira.
Hingað til hafði aðeins verið til ein byssa í þorp-
inu, en slíkan grip langaði alla að eiga, en þær
kostuðu mikið.
Nú var öllu gúmmíi safnað saman í skyndi, þvi
Shilikwe ætlaði aðeins að stanza 3 daga. Trott sér
föður sinn fara og spyrja um verð á einni byssunni.
Hún kostar 5 byrðar af gúmmí eða eina konu var
svarið. En faðir Trotts hafði ekki nóg af gúmmi
og dóttur átti.hann enga. Hann reyndi að fá verð-
ið lækkað, en Shilikwe gaf ekki eftir. Allt í einu
fóru þeir .að tala í lægri tón, og, að éndingu hvísl-
uðust þeir á úti í horni á kofanum. Faðir Trotts
er ánægður, þegar hann fer heim, því hann á að
fá byssu.
Dagarnir þrír eru liðnir og í gærkveldi pakk-
aði Shilikwe öllu niður og batt byrðarnar. Allt var
tilbúið. Og strax í dögun leggja þrælarnir af stað
!með byrðar sínar inn á þr.önga skógargötu. Allt í
einu kemur Trott með stóra bananakippu í fylgd
með föður sínum.
»Þessari bananakyppu gleymdir þú«, segir Trott
við Shilikwe.
En nú var ekki verið að hugsa um banana. Nán-
asti maður Shilikwe þreif til Trotts og eftir litla
stund var hann bundinn sem þræll með byrði á
herðum. Af stað, er hrópað! Og svipan ríður á herð-
um barnsins, svo blóðið streymir. Hann kallar á
föður sinn, en hann heyrir ekki. Hann er með
allan hugann við að athuga sína nýfengnu fallegu
byssu. Og án þess að líta við, hverfur hann til
þorpsins. Hann er stór hrifinn af byssu sinni, ,en
Shilikwe er einum þræli ríkari, og nú er haldið
áfram. Að kveldi er Trott alveg uppgéfinn, svona
langt hafði hann aldrei gengið og sízt með þunga
byrði, Um nóttina var hann vel bundinn til þess að
hann stryki ekki.
Næsta dag er svo haldið áfram. Vesalings Trott.
Hann er búinn að yfirgefa sitt frjálsa líf í þorp-
inu, með öllum æfintýraferðunum. Já, hann er
kominn langt burtu frá öllu því góða, sem stað-
ur sá hafði upp á að bjóða. Nú minntist hann þess
alls með söknuði. Og mamma? Hún grætur auð-
vitað vegna sínsi tapaða sonar. Lestin er nú komin
út af Bapaubcs-svæðinu og inn á land Bakelanna.
Ennþá fara þeir um þröngar skógargötur. Þeir eru
nú á meðal fólks, sem talar allt annað mál. En
Trott hefir sama yfirboðara, og frá honum þarf
hann ekki að vænta vægðar. Eftir mánaðartíma
koma þeir til þorps Shilikwe. Þorpið er stórt og
fallegt og stendur í miðjum skóginum. Troitt fær
nú að sofa óbundinn og vera án náins eftirlits,
því bæði hann og aðrir vita, að hann getur ekki
ratað heim, þó að hann vildi reyna að flýja, Þótt
hann legði á flótta, mundi hann farast í skóginum,
enda vissi hann það fyrir, að þótt hann ætti aft-
urkvæmt heim, þá mundi hann ekki vera fyrr kom-
inn þangað, en faðir hans seldi hann aftur. —
Þorpsbúarnir tóku á móti höfðingja sínum með
mikilli viðhöfn, og héldu stóirhátíð. Þar var etið
kjöt og fleira, o»g drukkin sterk vín. Þar var sung-
ið og dansað og rabbað saman. Trott litli, þessi
umkomulausi, ófrjálsi drengur, sat nokkuð frá, á-
samt öðrum þrælum, og hlustuðu þeir og harfðu
á það sem fram fór. Shilikwe átti 20 þræla, sem
búa í nánd við jurtagarðana, og eiga þeir að verja
þá fyrir villidýrum. Enginn þrælanna var af sama
kynstofni og Trott, en með tímanum lærir hann
mál Bakelanna. Hann verður sjálfur að veiða sér
dýr til matar, og matbúa handa sér. Einnig verð-
ur hann að sjá um og hirða þær ófullkomnu spjar-
ir, sem hann hefir til að skýla nekt sinni með.
Banana gat hann þó fengið með allhægu móti og
létti það mataröflunina nokkuð.
Eftir nokkra mánuði leggur höfðinginn af stað
í nýja kaupferð og tekur Trott með sér. 1 fleiri
daga verour hann að bera byrðar meðal framandi
fólks. Síðan snúa þeir heim aftur, og hafði þá
Shilikwe fengið sér 6 nýja þræla, karla og kon-
ur. Við þessi kjör ólzt Trott upp um langa hríð.
Svo var það dag einn, að höfðinginn kallaði liann
fyrir sig, og skiptir fötum á honum, og, klæðir hann
í Evrópu fatnað.
Síðan leiðir Shilikwe hann út í mitt þorpið en
þar er fyrir ókunnur höfðingi, sem rannsakar hann
nákvæmlega. Eftir að Akela-höfðinginn hafði rann-